Klúbbhús og veitingasala

5.5.2011

Á Urriðavelli er stórglæsilegt 350 fermetra veitinga- og klúbbhús. Í klúbbhúsinu er afgreiðsla Urriðavallar ásamt verslun með helstu nauðsynjavörum golfarans.  Þar er einnig búnings- og salernisaðstaða. Skrifstofa framkvæmdastjóra er inn í klúbbhúsi ásamt vel útbúnu skrifstofu/fundarherbergi. 

Stórglæsilegur veitinga og veislusalur er í klúbbhúsinu sem rúmar um 110 manns og eldhúsið er búið bestu tækjum og tólum.  Frá veitingahúsinu er glæsilegt útsýni yfir stórann hluta vallarsvæðisins, bæði 9. og 18. hola eru staðsettar beint fyrir framan húsið.

Par 3 ehf er rekstaraðili að veitingahúsinu sem er alla jafnan opið frá byrjun maí mánaðar fram til lok október mánaðar. Opnunartími er alla daga frá kl. 08:00 - 22:00 og lengur er þörf krefur.  Rekstaraðilar Öðlings sem er nafn staðarins bjóða uppá veisluþjónustu og frábæran matseðil fyrir alla. Yfir vetrartímann er veitingaaðstaðan opin fyrir veislur, fundi eða aðra mannfagnaði, hægt er að ná í rekstraraðila í síma 697 8900 (Nikulás) og á netfangið veitingar@oddur.is.

 


  • Rástímaskráning og  skrifstofa
  • 565 9092

Flýtival



Þetta vefsvæði byggir á Eplica