• 1. Object
  • 2. Object

0° - N 0 m/s

585 0050

Book Tee Times

Elín Hrönn nýr formaður Golfklúbbsins Odds

Aðalfundur Golfklúbbsins Odds fór fram í gærkvöld. Ingi Þór Hermannsson ákvað að stíga til hliðar sem formaður klúbbsins eftir sjö ára formannssetu. Í hans stað var kjörin Elín Hrönn Ólafsdóttir og er hún fyrsta konan til að gegna embætti formanns í 23 ára sögu klúbbsins. Elín var ein í framboði og var kjörin með lófataki félagsmanna.

Elín Hrönn starfar sem markaðsstjóri hjá fyrirtækinu Vistor í Garðabæ. Hún er 45 ára gömul og hefur verið meðlimur í Golfklúbbnum Oddi um árabil. Elín Hrönn var verkefnastjóri sjálfboðaliða á Evrópumóti kvennalandsliða í sumar sem heppnaðist afar vel.

Halla Hallgrímsdóttir var við sama tækifæri kjörin í stjórn til tveggja ára og Kári Sölmundarson kjörin í varastjórn til eins árs.

Stjórn GO 2016-2017:
Elín Hrönn Ólafsdóttir, formaður
Einar Geir Jónsson
Halla Hallgrímsdóttir
Svavar Geir Svavarsson
Ágústa Arna Grétarsdóttir
Kári Sölmundarson, varamaður

Erfið fjárshagsstaða
Tap var á rekstri Golfklúbbsins Odds um 4,7 milljónir króna á sl. starfsári. Fram kom í máli Þorvaldar Þorsteinssonar að rekja megi tapreksturinn einkum til aukins launakostnaðar á árinu vegna kjarasamningshækkana sem voru fyrr á árinu og hærri en gert var ráð fyrir í áætlun.

Rekstrartekjur klúbbsins voru 169,6 milljónir króna á starfsárinu og jukust um tæpar 10 milljónir á milli ára. Rekstargjöld voru aftur á móti því sem nemur 173,6 milljónir króna. Niðurstaðan því tap um rúmar 4,7 milljónir króna á árinu að viðbættum afskriftum og vaxtagjöldum.

Fram kom í máli Inga Þórs Hermannssonar, fráfarandi formanns GO, að afar mikilvægt væri að treysta rekstrargrundvöll GO. Nefndi hann þar sérstaklega mikilvægi þess að fá meiri stuðning frá sveitarfélagi. GO er eina íþróttafélagið innan Garðabæjar sem greiðir leigu fyrir aðstöðu sína og er það þungur baggi í rekstri klúbbsins.

Kynna má sér frekar ársreikninga í Ársskýrslu GO sem má nálgast hér.

Gjaldskrá næsta árs
Stjórn GO bar upp tillögu að nýrri gjaldskrá fyrir árið 2017 sem var samþykkt án athugasemda af þeim félagsmönnum sem sóttu aðalfund GO í gærkvöldi. Gjaldskránni var breytt og greiða 67 ára og eldri 80% af fullu gjaldi. 20-25 ára greiða 50% af árgjaldi og félagsmenn yngri en 20 ára greiða 30% af árgjaldi.

Gjaldskrá GO 2017:

Félagsgjöld GO 2017 Gjald
Félagsmenn 26-66 ára 109.000
Félagsmenn 67 ára og eldri 87.200
Félagsmenn 18-25 ára 54.500
   
Börn og unglingar 17 ára og yngri 32.700
  ———
Systkinaafsláttur:  
– Tvö systkini 43.700
– Þrjú systkini 54.700
– Fjögur systkini 65.700
Inntökugjald 15.000
Nýtt félagsskírteini 700

Viðurkenningar
Á aðalfundi GO voru fjórar félagar GO heiðraðir sérstaklega fyrir óeigingjarnt starf í þágu klúbbsins.

Hallgrímur Þorsteinsson og Jóhanna Dröfn Kristinsdóttir fengu Gullmerki GO fyrir starf í þágu klúbbsins. Heiðursviðurkenningu fékk Atli Stefánsson. Haukur Örn Birgisson, forseti GSÍ, veitti Inga Þór Hermannssyni silfurmerki GSÍ fyrir starf sitt í þágu GO og golfhreyfingarinnar á Íslandi.

heidursvidurkenningar2016

Jóhanna Dröfn Kristinsdóttir, Atli Stefánsson og Halla Hallgrímsdóttir sem tók við viðurkenningu fyrir hönd föður síns, Hallgríms Þorsteinssonar.

 

haukur-ingithor

Haukur Örn Birgisson, forseti GSÍ, veitti Inga Þór Hermannssyni silfurmerki GSÍ í gær.

Elín Hrönn Ólafsdóttir, formaður GO og Ingi Þór Hermannson, fráfarandi formaður GO.

Elín Hrönn Ólafsdóttir, formaður GO og Ingi Þór Hermannson, fráfarandi formaður GO.

< Fleiri fréttir