• 1. Object
  • 2. Object

0.8° - S 1.6 m/s

585 0050

Book Tee Times

Braut í fóstri

Í gegnum síðustu ár höfum við haldið á lofti verkefninu Braut í fóstri þar sem sérhver félagsmaður fær eina braut í fóstur yfir sumarið. Það sem þetta verkefni snýst um er að félagsmaður mun þá þegar hann leikur völlinn sérstaklega taka til hendinni á sinni braut, tína upp rusl, henda brotnum tíum í þar til gerða standa, raka sandgryfju eða laga hrífu ef við á og almennt hugsa um sína braut.

Við vonum að þeir sem ekki þekkja þetta verkefni finni sína braut með því að skoða skiptinguna hér fyrir neðan þar sem við höfum skipt félagsmönnum upp í 18 hópa og farið var þar eftir stafrófsröð.  

Hér sést upphafsnafn og lokanafn á hverri braut og ef þitt nafn á heima þar á milli þá er það brautin þín.

Braut 1Aðalbjörg- Árni
Braut 2Ása- Bjarki
Braut 3Bjarni- Davíð
Braut 4Diðrik – Erna
Braut 5Ester- Guðjón
Braut 6Guðlaug – Guðrún
Braut 7Gunnar – Haraldur
Braut 8Haukur – Hrafn
Braut 9Hrafnhildur – Jóhann
Braut 10Jóhanna – Jökull
Braut 11Karl – Lárus
Braut 12Lilja – Níels
Braut 13Oddný – Phill
Braut 14Rafn – Sigríður
Braut 15Sigrún – Skúli
Braut 16Smári – Sveinn
Braut 17Sverrir – Vilborg
Braut 18Vilhjálmur – Össur