Meistaramótið 2011
Meistaramótið hefst sunnudaginn 10. júlí og eru það eldri karlar sem munu hefja leik þann dag. Upplýsingar um rástíma hvers dags verða birtar eins fljótt og auðið er fyrir hvern leikdag. Skráningu í mótið lýkur 9. júlí klukkan 18:00. Endanlegir rástímar verða birtir kvöldið fyrir hvern leikdag. Við minnum félaga á að kynna sér reglugerðina og hafa samband við afgreiðslu ef frekari upplýsinga er þörf.
Allir félagar í Oddi eru hvattir til þátttöku á meistaramótinu. Skráning er á golf.is og í afgreiðslu Urriðavallar.
Laugardaginn 16. júlí verður lokahóf mótsins. Húsið opnar kl. 18:30, það verður tilboð á barnum til kl. 20:00, eftir það verður boðið upp á mat, pútt- og vippkeppni og verðlaun veitt fyrir árangur á mótinu. Hreimur Örn og Matti Matt, úr Vinum Sjonna, spila fyrir dansi fram á kvöld.
Að lokum minnum við á regluyfirferð Þórðar Ingasonar, alþjóðadómara í golfi, laugardaginn 9. júlí, klukkan 10:00.
