• 1. Object
  • 2. Object

11.6° - NNV 6.2 m/s

585 0050

Book Tee Times

Gróðursetningardagur á morgun

Hinn árlegi Gróðursetningardagur fer fram á morgun, miðvikudaginn 27. maí. Félagar eru hvattir til að fjölmenna en gróðursetning fer fram á milli kl. 17:00 – 19:00. Mæting er við Ljúfling kl. 17:00 og fer gróðursetning aðallega fram við Ljúfling og 5. braut. Félagar eru hvattir til að mæta með skóflur og fötur.

Ljúflingur verður lokaður á meðan gróðursetningu stendur. Jafnframt verður unnið við æfingasvæðið og verður æfingabásarnir á Lærlingi lokaðir á meðan gróðursetningu stendur.

Athygli er vakin á því að næstu daga mun fara fram vinna við lagfæringar á vegi í gegnum 2. braut. Einhver truflun gæti orðið á leik kylfinga af þessum sökum á 2. og 5. braut. Við hvetjum kylfinga til að sýna vallarstarfsmönnum tillitssemi á meðan þessum lagfæringum er hrint í framkvæmd.

< Fleiri fréttir