• 1. Object
  • 2. Object

3.7° - ANA 7.5 m/s

585 0050

Book Tee Times

Hvar geta félagar spilað í næstu viku?

Vegna Evrópumóts kvennalandsliða sem hefst á sunnudag á Urriðavelli verður golfsvæðið í Urriðavatnsdölum lokað frá 3. – 9. júlí næstkomandi. Bæði Urriðavöllur og Ljúflingur verður lokaður. Jafnframt verður æfingasvæðið lokað fyrir öðrum en keppendum EM.

Þetta mun hafa töluvert rask í för með sér fyrir félagsmenn sem geta ekki leikið golf á sínum heimavelli á meðan mótinu stendur. Starfsmenn og stjórn klúbbsins hefur af þeim sökum lagt sig fram við að fjölga þeim úrræðum sem félagar GO hafa úr að spila á meðan mótinu stendur.

Við viljum benda félagsmönnum sérstaklega á að nýta sér vinavelli GO á meðan EM stendur. Nær allir vinavellir GO eru opnir fyrir heimsóknum í næstu viku. Félagar GO geta leikið Brautarholtsvöll á kr. 2.000 í Evrópumótsvikunni.

Vinavellir GO 2016:

  • Golfklúbbur Grindavíkur – Húsatóftavöllur, sími 426-8720 (2000 kr.)
  • Golfklúbbur Suðurnesja – Hólmsvöllur, sími 421-4100 (1600 kr.)
  • Golfklúbburinn Hellu – Strandavöllur, sími 487-8208 (1600 kr.)
  • Golfklúbburinn Borgarnesi -Hamarsvöllur, sími 437-2000 (1600 kr.)
  • Golfklúbburinn Þorlákshöfn – Þorlákshafnarvöllur,
  • sími 483-3009 (1600 kr.)
  • Golfklúbburinn Leynir Akranesi – Garðavöllur, sími 534-0201 (1600 kr.)
  • Golfklúbburinn Glanni við Bifröst-Glannavöllur,
  • sími 435-0014 (1200 kr.)
  • Golfklúbburinn Geysir – Haukadalsvöllur, sími 893-8733 (1500 kr.)
  • Golfklúbbur Brautarholts – Brautarholtsvöllur, sími 566-6045 (2000 kr)

Rétt er að benda á að félagar í GO geta leikið alla golfvelli landsins sem opnir eru með 50% afslætti á meðan á Evrópumótinu stendur. Tilvalið að nýta sér þann kost.

Einnig viljum við hvetja félaga í GO í að mæta á Urriðavöll og horfa á efnilegstu kylfinga Evrópu takast á við okkar frábæra völl. Urriðavöllur hefur tekið mikil framförum á síðustu dögum og er tilbúinn til að takast á við Evrópumót kvennalandsliða.

Kveðja,
Starfsmenn og stjórn GO

< Fleiri fréttir