• 1. Object
  • 2. Object

9.8° - NNV 6.7 m/s

585 0050

Book Tee Times

Inniaðstaða á nýju ári

Golfklúbburinn Oddur hefur náð samkomulagi við Golfklúbb Kópavogs og Garðabæjar varðandi inniaðstöðu fyrir félagsmenn GO á árinu 2017. Félögum í GO býst að stunda golfæfingar í nýrri og glæsilegri íþróttamiðstöð GKG gegn hóflegri þóknun eða kr. 500.

Félagsmönnum GO býst að stunda æfingar í íþróttamiðstöð GKG á opnunartíma fram til kl. 15:00 á daginn og eftir kl. 19:00 á kvöldin. Milli 15-19 eru æfingar hjá afrekshópum GKG.

Félagsmenn skulu ganga inn um aðalinngang íþróttamiðstöðvar GKG, gera vart við sig í afgreiðslu og greiða gjald áður en haldið er niður í æfingarýmið. Aðstaðan í íþróttamiðstöð GKG er góð en þar er hægt að slá í net og æfa stutta spilið á púttmottu. Einnig er til staðar frábærir golfhermar sem félagsmenn geta keypt sér aðgang að.

Við hvetjum félagsmenn til að nýta aðstöðuna vel og undirbúa sig með þeim hætti fyrir nýtt og spennandi golfsumar á Urriðavelli.

< Fleiri fréttir