• 1. Object
  • 2. Object

3.7° - ANA 7.5 m/s

585 0050

Book Tee Times

Íslandsmót eldri kylfinga 50+ á Urriðavelli

Dagana 19. – 21. júlí fer fram  Íslandsmót eldri kylfinga 50+ á Urriðvelli. Mótið er haldið undir merkjum Icelandair. 

Leikfyrirkomulag og rásröðun
Keppt skal samkvæmt gildandi Reglugerð um Íslandsmót í flokki eldri kylfinga og móta- og keppendareglum GSÍ. Leika skal 54 holur á þremur dögum. Aldur miðast við almanaksár. Ef jafnt er að loknum 54 holum skal leika þriggja holu umspil og síðan bráðabana ef þörf er, um 1. sæti.

Þátttökurréttur
Hámarksfjöldi kylfinga í mótið er 144 þar af í flokki karla 50 ára og eldri verða hámark 78 keppendur og í flokki kvenna 50 ára og eldri hámark 27 keppendur. Í flokki karla 65 ára og eldri verða hámark 30 keppendur og í flokki kvenna 65 ára og eldri hámark 9 keppendur. Ef fjöldi skráðra keppenda fer yfir hámark í hverjum flokki ræður forgjöf því hverjir komast inn í hvern flokk fyrir sig. Þ.e.a.s forgjafar lægstu karlarnir og forgjafar lægstu konurnar komast í mótið. Standi val á milli keppenda með jafnháa forgjöf skal hlutkesti ráða. Ef ekki næst hámarksfjöldi í einhvern flokkinn má bæta við keppendum í aðra flokka. Mótsstjórn er heimilt að fjölga keppendum um 1-2.

Skráning og þátttökugjald
Þátttakendur skulu skrá sig í mótið á golf.is fyrir klukkan 23:59 á mánudeginum 16. júlí. Æfingahringur er innifalinn í mótsgjaldinu sem vinsamlegast greiðist áður en æfingarhringur er leikinn. Vinsamlegast hafið samband við klúbbinn til að panta rástíma. Þátttökugjöld verða ekki endurgreidd ef afboðun kemur eftir að skráningarfresti lýkur. Forföll skal tilkynna með tölvupósti á netfangið motanefnd@golf.is.

**Engar undantekningar á skráningu verða leyfðar í mótið eftir að skráningu lýkur.**

Flokkur  

Fjöldi

Teigar    

Mótsgjald

Öldungaflokkur karla 50 ára og eldri

78 keppendur  

Teigar 54

13.000,- kr.

Öldungaflokkur karla 65 ára og eldri

30 keppendur

Teigar 54

13.000,- kr.

Öldungaflokkur kvenna 50 ára og eldri

27 keppendur

Teigar 46

13.000,- kr.

Öldungaflokkur kvenna 65 ára og eldri

9 keppendur

Teigar 46

13.000,- kr.

Samtals

144 keppendur

   

Rástímar og ráshópar
Rástímar verða birtir á golf.is á þriðjudeginum 17. júlí eftir kl.17:00. Ræst verður út af 1. teig með 10 mínútna millibili. Á fyrsta keppnisdegi er keppendum raðað út eftir forgjöf en alla aðra daga verður raðað út eftir skoriEkki verða leyfðar breytingar á útgefnum rástímum eftir birtingu þeirra.

1. hringur, fimmtudagur: Rástímar frá klukkan 07:30 – 15:00

Rásröð: Konur 65+, Konur 50+, Karlar 50+, Karlar 65+

 

2. hringur, föstudagur: Rástímar frá klukkan 07:30 – 15:00

Rásröð: Karlar 50+, Karlar 65+, Konur 65+, Konur 50+

 

3. hringur, laugardagur: Rástímar frá klukkan 07:30 – 15:00

Rásröð: Karlar 65+, Konur 65+, Konur 50+, Karlar 50+

Æfingahringur
Einn æfingahringur án endurgjalds er heimilaður. Keppnisvöllurinn verður opinn til æfinga fyrir skráða keppendur í síðasta lagi einum degi fyrir mót. Vinsamlegast hafið samband við klúbbinn til að panta rástíma. Athugið reglur um æfingahringi.

Verðlaun

Veitt verða verðlaun fyrir 1. – 3. sæti í flokki karla 50 ára og eldri og kvenna 50 ára og eldri án forgjafar.

1. sæti: 40.000,- kr. Gjafakort Icelandair

2. sæti: 30.000,- kr. Gjafakort Icelandair

3. sæti: 15.000,- kr. Gjafakort Icelandair

Veitt verða verðlaun fyrir 1. – 3. sæti í flokki karla 65 ára og eldri og kvenna 65 ára og eldri án forgjafar.

1. sæti: 40.000,- kr. Gjafakort Icelandair

2. sæti: 30.000,- kr. Gjafakort Icelandair

3. sæti: 15.000,- kr. Gjafakort Icelandair

Áætluð verðlaunaafhending

Í mótslok er keppendum boðið til lokahófs í golfskála, keppendur verða beðnir um að boða komu sína í lokahófið áður en þeir hefja leik á fyrsta keppnisdegi. Öllum er heimilt að koma á lokahófið.

Golfbílar 
Í golfmótum á vegum GSÍ, að undanskildu Íslandsmóti eldri kylfinga, 65 ára og eldri, skal mótsstjórn aðeins veita þeim keppendum, sem framvísa vottorði frá tilnefndum trúnaðarlækni GSÍ, heimild til að nota golfbíl meðan á keppni stendur. Vottorðið skal staðfesta að keppandinn búi við langvarandi líkamlega fötlun og þurfi á golfbíl að halda við keppni, að því tilskildu að slíkt veiti keppandanum ekki ótilhlýðilegt forskot, sbr. undantekningu 1 við golfreglu 14-3.


Umsókn um heimild til notkunar golfbíls skal senda mótanefnd GSÍ að minnsta kosti 
einni
viku
 áður en mótið hefst. Umsóknin skal send til motanefnd@golf.is og henni skal fylgja afrit
vottorðsins.


Upplýsingar um trúnaðarlækni GSÍ skulu birtar á heimasíðu GSÍ.

Hægt er að kynna sér allar reglugerðir sem mótinu fylgja á golf.is

Dómari: Þórður Ingason 

Mótsstjórn: Þórður Ingason, Þorvaldur Þorsteinsson, Stefán Garðarsson

< Fleiri fréttir