• 1. Object
  • 2. Object

1.9° - NA 4.5 m/s

585 0050

Book Tee Times

Langtíma golfnámskeið í vetur – hefjast í janúar 2018

Golf Akademía Odds auglýsir langtímanámskeið í vetur og hefjast námskeiðin í janúar 2018:

Boðið verður uppá tvö golfnámskeið sem fram fara á laugardögum og eitt námskeið sem fram fer á miðvikudögum frá janúar 2018 og fram í mars 2018. Um er að ræða 11. skipta námskeið þar sem farið verður yfir flest atriði golfsins. Í hverri viku verða 3-4 stöðvar settar upp þar sem farið verður yfir verkefni dagsins og því ætti að vera hægt að taka á öllum þáttum golfsins og námskeiðin henta bæði byrjendum og lengra komnum.  Námskeiðin fara fram í góðri inniaðstöðu í knattspyrnuhöllinni Kórnum í Kópavogi.

Verð á hvert námskeið er 30.000 kr. Skráning á: mpgolfkennsla@hotmail.com eða í síma 618-1897

Námskeið 1 og 2

Aðstaða: Knattspyrnuhöllin Kórinn Kópavogi (undir stúku)

Tímasetning:
Námskeið 1: Laugardagur: kl: 8:30 – 9:30
Námskeið 2: Laugardagur: kl: 12:30 – 13:30

Dagsetningar:
6. – 13. – 20. – 27. janúar
3. – 10. – 17. – 24. febrúar
3. – 10. – 17. mars

Kennarar: Phill Hunter og  Rögnvaldur Magnússon

– – – – – – – – – – – – – – – – – – – – – – – 

Námskeið 3

Aðstaða: Knattspyrnuhöllin Kórinn Kópavogi (undir stúku)

Tímasetning:
Námskeið 3: Miðvikudagur: kl: 12:00 – 13:00

Dagsetningar:
10. – 17. – 24. – 31. janúar
7. – 14. – 21. – 28.  febrúar
7. – 14. – 21. mars

Kennari: Phill Hunter

Skráning á námskeiðin er á tölvupóst mpgolfkennsla@hotmail.com eða í síma 6181897

 

 

< Fleiri fréttir