• 1. Object
  • 2. Object

-2.2° - NA 2 m/s

585 0050

Book Tee Times

Skúli og Hrafnhildur taka forystuna í Meistaramóti GO

Meistaramót Golfklúbbsins Odds er komið á fullt skrið. Leikur hófst í meistaraflokkum í dag. Hjá körlunum er Skúli Ágúst Arnarson í forystu að loknum fyrsta keppnisdegi. Hann lék á 75 höggum eða fjórum höggum yfir pari. Hann er einu höggi betri en Rögnvaldur Magnússon sem kemur annar. Jón Júlíus Karlsson er svo í þriðja sæti á 79 höggum.

Í meistaraflokki kvenna er Hrafnhildur Guðjónsdóttir í forystu. Hún lék á 80 höggum í dag og hefur góða forystu. Sólveig Guðmundsdóttir kemur önnur á 88 höggum og Auður Skúladóttir er í þriðja sæti.

Keppni í mörgum flokkum hefst á morgun og lýkur mótinu með glæsilegu lokahófi á föstudag.

Upplýsingar um rástíma og skor keppenda má finna í mótaskrá á golf.is

< Fleiri fréttir