opnunartími inniæfingaaðstöðu vikan 23.1. - 28.1.2012
Mánudagur opið frá kl. 14:00 – 17:00 og 18:00 – 21:00Unglingaæfing á milli 17:00 – 18:00 þá er húsið eingöngu ætlað þeim.
Þriðjudagur opið frá kl: 14:00 - 21:00
Miðvikudagur kl. 14:00 – 17:00 og 19:00 - 21:00
Lokað á milli 17:00 og 19:00 vegna æfinga unglinga og afrekshópa.
Púttmótaröð kvennanefndar hefst klukkan 19:30, húsið er opið til 21:00 en púttvöllur upptekinn vegna mótaraðarinnar s.s. hægt að slá í netið.
Fimmtudagur opið frá kl. 14:00 – 21:00
Föstudagur Lokað
Laugardaga kl. 10:00 – 14:00, Púttmót fyrir alla félagsmenn Odds, 2. umferð í púttmótaröð.
Sunnudagur Lokað
Athugið að ofangreindir opnunartímar geta tekið breytingum og verður upplýsingum um það lekið á heimasíðuna sem og sent út í pósti til félagsmanna.
Æfingahópar unglinga og afrekskylfinga æfa á mánudögum og miðvikudögum, vinsamlegast hafið í huga að á þeim tímum þ.e. milli 17 - 18 annarsvegar (mánudaga) og 17 -19 hinsvegar (miðvikudaga) er húsið því frátekið fyrir þessa hópa eða eins og auglýst er. Við hvetjum alla unglinga klúbbsins til að kíkja á æfingar og stuðla að skemmtilegu og fjölmennu unglingastarfi í góðri aðstöðu hjá góðum kennurum.
Púttmótaröð kvenna er ýmist á mánudögum eða miðvikudögum, og þessa vikuna er það miðvikudagurinn 25 janúar og er púttvöllurinn þá til afnota fyrir þær frá 19:30. Hægt er að slá í netið á meðan púttmótaröðin fer fram og því eru makar og aðrir velkomnir.
Gjaldi er stillt í hóf. Stakt skipti kostar kr. 500,- og tíu skipta kort kostar kr. 3.500,- og eru golfboltar innifaldir í verðinu.
Það verður heitt á könnunni alla opnunardagana - svo nú er bara að drífa sig af stað!
