• 1. Object
  • 2. Object

2.4° - ASA 3.6 m/s

585 0050

Book Tee Times

Siðareglur

ÉG, SEM FÉLAGI Í ODDI ÆTLA AÐ;

  • Taka ætíð tillit til annarra golfspilara sem og starfsmanna vallarins
  • Mæta á réttum tíma á teig, þ.e. vel fyrir bókaðan rástíma svo aðrir þurfi ekki að bíða
  • Klæðast viðeigandi fatnaði skv. reglum golfklúbbsins
  • Leika af heiðarleika og samkvæmt golfreglum
  • Heilsa öðrum kylfingum í upphafi leiks
  • Staðsetja mig vel til hliðar, hægra megin þar sem því er viðkomið, og örlítið fyrir aftan þann sem er að fara að slá
  • Slökkva á síma
  • Bíða eftir að komi að mér að leika
  • Bíða eftir meðspilurum meðan þeir leika
  • Forðast að trufla meðspilara þegar þeir slá
  • Ganga vel frá og raka sandgryfju þurfi að slá bolta þaðan
  • Ganga vel frá og laga skemmdir á braut
  • Ganga ekki í púttlínu annarra
  • Nota flatargaffalinn
  • Skrá á skorkort eftir að hafa gengið af flötinni til að flýta leik
  • Þakka fyrir hringinn í lok leiks
  • Afbóka teigtíma í tíma
  • Halda góðum leikhraða
  • Hleypa fram úr til að flýta leik
  • Ganga vel um völlinn okkar
  • Kynna mér siðareglur golfsins
  • Sýna golfandann í verki

Sýni allir golfandann í verki verður golfleikurinn ánægjulegri fyrir alla á golfvellinum!