• 1. Object
  • 2. Object

7.2° - NNV 3.9 m/s

585 0050

Book Tee Times

Helgi og Sveinbjörn sigurvegarar í Wilson Staff Open

Frábær þátttaka var í Wilson Staff Open mótinu sem fram fór í dag við frábærar aðstæður á Urriðavelli. Um 100 kylfingar tóku þátt í mótinu og var sannkallað blíðskaparveður, sól og hægur vindur.

Keppt var í höggleik og puntkakeppni hér að neðan má sjá helstu úrslit í mótinu. Siguvegari í höggleik var Helgi Dan Steinsson úr GG á 73 höggum. Í punktakeppninni var það Sveinbjörn Jónasson úr GÞ sem bar sigur úr býtum með 43 puntka.

Helstu úrslit:

Höggleikur án forgjafar:

  1. Helgi Dan Steinsson GG – 73 högg (40.000 kr. vöruúttekt í Leonard)
  2. Rögnvaldur Magnússon GO – 74 högg (30.000 kr. vöruúttekt í Leonard)
  3. Óttar Helgi Einarsson GKG – 76 högg (20.000 kr. vöruúttekt í Leonard)

 

Úrslit í punktakeppni

  1. Sveinbjörn Jónasson GÞ – 43 punktar (40.000 kr. vöruúttekt í Leonard)
  2. Ragnar Geir Hilmarsson GKG – 42 punktar (30.000 kr. vöruúttekt í Leonard)
  3. Ronnarong Wongmahadthai GM – 40 punktar (20.000 kr. vöruúttekt í Leonard)

 

Nándarverðlaun á 4. braut: Hafsteinn Ragnarsson GO – 4.31m
Við þökkum öllum fyrir þátttökuna og hlökkum til að taka aftur á móti ykkur í Wilson Staff mótinu að ári. Jafnframt viljum við koma þökkum til Wilson Staff  fyrir frábæran stuðning.

< Fleiri fréttir