• 1. Object
  • 2. Object

9° - NNV 5.9 m/s

585 0050

Book Tee Times

Hreinsunardegi frestað vegna veðurs

Hreinsunardegi GO sem fara átti fram á morgun, fimmtudaginn 5. maí, hefur verið frestað vegna veðurs. Veðurspá er slæm og því hefur verið ákveðið að færa hreinsunardaginn til mánudagsins 16. maí sem er annar í hvítasunnu.

Mæting er kl. 09:00 og verður tekið til hendinni hér á Urriðavelli. Þátttakendur eru beðnir um að taka með sér hanska og þeir sem hafa tök á því að taka mér sér rökur fyrir létt garðyrkjustörf eru hvattir til þess.

Stefnt er að því að ljúka hreinsun um hádegisbil og verður þá boðið upp á grillaðar pulsur og gos. Eftir hádegi fer fram níu holu golfmót með skemmtilegum verðlaunum.

< Fleiri fréttir