• 1. Object
  • 2. Object

8.3° - NNV 6 m/s

585 0050

Book Tee Times

Skráning hafin í Meistaramót GO

Skráning í Meistaramót GO hófst í dag en mótið sjálft hefst sunnudaginn 10. júlí. Mótið er hápunkurinn í félagsstarfi klúbbsins á hverju ári og hvetjum við kylfinga til að taka þátt. Mótið heppnaðist frábærlega í fyrra og var metþátttaka í mótinu.

Mótið hefst sunnudaginn 10. júlí með keppni í forgjafaflokkum 25,1 og ofar ásamt flokkum eldri kylfinga. Keppt er í þrjá daga með þeirri undantekningu að 65 + keppa í tvo daga. (sérmót á golf.is)

Miðvikudaginn 13. júlí hefst svo keppni í forgjafaflokkum 25,0 og undir keppt er í þrjá daga með þeirri undantekningu að Meistaraflokkur karla og kvenna leikur í fjóra daga frá 12 – 15. júlí). Lokahóf er svo föstudagskvöldið 15. júlí og er hófið innifalið í þátttökugjaldi. (sérmót á golf.is)

Skráning er sér í  barna og unglingaflokka og verður rástímum í þá raðað niður með tilliti til skráningar á fyrstu þrjá keppnisdagana 10 – 12. júlí.

Meðfylgjandi er skipulag rástíma miðað við leikdaga þar sem keppendur geta séð áætlaða rástíma hvers hóps á keppnisdögum og er miðað við skráningu síðasta árs.

Reglugerð Meistaramóts GO 2016

Skráning fer fram á golf.is

Skipulag rástíma meistaramót Oddur 2016 - plan - 3 dagar á hóp punkar högg) (2) Tímaplan og flokkar-1

< Fleiri fréttir