• 1. Object
  • 2. Object

0° - 0 m/sek

585 0050

Golfleikjanámskeið

GOLFLEIKJANÁMSKEIÐ GO

 

Um golfleikjanámskeiðið

Golfkennsla á golfleikjanámskeiðum GO er í höndum PGA kennaranna Phill Hunters og Rögnvaldar Magnússonar. Námskeiðstími er 9 – 12 á öllum námskeiðum. Á námskeiðið er börnum frá 6 ára aldri eða sem byrjuð eru í grunnskóla kennd grunnatriði golfíþróttarinnar. Kennslan er uppsett með æfingum og leikjum með það að markmiði að skapa ánægjulega upplifun fyrir börnin.

Kennsluaðstaða og útbúnaður

Námskeiðin fara fram á æfingasvæði GO, pútt og vippvelli ásamt því að Ljúflingur er nýttur undir spilakennslu og frekari kynningu á íþróttinni. 

Mæting er á hverjum morgni í golfskálann á Urriðavelli þar sem kennarar taka á móti börnunum.

Æskilegt er að börnin mæti með nesti með sér.

Ekki er skylda að mæta með eigin útbúnað en það er að sjálfsögðu velkomið, kennarar eru með aukakylfur til að nota þegar það á við ásamt því að notaður er útbúnaður frá SNAG. Við biðjum foreldra um að kenna börnunum strax góða umgengni og skilja ekki eftir golfsett og útbúnað fyrir framan inngang að golfskála.

Dagsetningar fyrir námskeiðin í sumar. (2023)  

Skráning fer fram í gegnum Sideline Sports (XPS) – SMELLIÐ HÉR TIL AÐ SKRÁ 

Athugið að til að skrá barn á golfleikjanámskeið er hægt að ganga frá skráningu í gegnum hlekkina hér fyrir ofan. Einnig er hægt að ná sér í app sem kallast “XPS Network”, þegar það er klárt er hægt að bóka á námskeið með því skrá inn með rafrænum skilríkjum. Ef ykkur vantar aðstoð við skráningu þá endilega hafið samband við skrifstofu GO.

  1. námskeið: 12. – 16. júní (5 dagar) 
  2. námskeið: 19. – 23. júní (5 dagar)
  3. námskeið: 26. – 30. júní (5 dagar)
  4. námskeið: 10. júlí. – 14. júlí (5 dagar)
    Athugið að námskeiðstími er frá 9:00 – 12:00

    Verð fyrir 5 daga námskeið er 17.000 kr.  

Öll börn sem skráð eru á námskeið hjá Oddi fá félagsaðild að Golfklúbbnum Oddi svokallaða ljúflingsaðild og geta haldið áfram að spila allt sumarið á okkar frábæra æfingavelli Ljúflingi.

Hjá GO verður í boði að skrá börn á sumaræfingar í kjölfar golfnámskeiða og eru þær æfingar einungis hugsaðar fyrir aldurshópinn 9 ára (2014) – 14 ára (2009) en yngri iðkendur í samráði við Hrafnhildi íþróttastjóra. 

Kennarar og leiðbeinendur:

Golfkennsla er í höndum PGA kennaranna Phill Hunters og Rögnvaldar Magnússonar ásamt því að með þeim starfa PGA nemar og aðrir leiðbeinendur úr íþrótta og unglingastarfi GO.

Markmið golfleikjanámskeiðs:

Við kynnum íþróttina og umhverfið sem nýtt er til þess að stunda golf fyrir iðkendum og viljum ýta undir áhuga barnanna að stunda þessa fjölskylduvænu íþrótt. Æfingar eru fjölbreyttar og aðlagaðar að getustigi barnanna og tryggt að allir kynnast þeim atriðum sem þarf að hafa í huga hvort sem það eru pútt, stutt og löng högg, golfsiðir, golfreglur og við reynum að leggja áherslu á að allir spili golfvöll (Ljúfling) til að upplifi golf í sinni aðalmynd. Lögð er áhersla á öryggi, skemmtun og gleði svo það skapist jákvætt viðhorf til íþróttarinnar. 

Hægt er að senda fyrirspurn á skrifstofa@oddur.is varðandi námskeiðin.