• 1. Object
  • 2. Object

2.7° - SSV 1.9 m/s

585 0050

Book Tee Times

Golfklúbburinn Oddur óskar eftir veitingamanni


Golfklúbburinn Oddur auglýsir eftir rekstraraðila veitingastaðarins Öðlings sem staðsettur er í golfskála klúbbsins við Urriðavöll í Urriðavatnsdölum, Garðabæ. Veitingastaðurinn er bjartur og fallegur og tekur 110 manns í sæti. Meginhlutverk rekstrarins er að þjóna gestum golfklúbbsins á þeim tíma sem golfvöllurinn er opinn. Veitingastaðurinn gegnir lykilhlutverki í þeirri viðleitni að skapa eftirsóknarvert umhverfi á og við golfvöllinn. Utan golfvertíðar nýtist veitingastaðurinn til almennra veisluhalda og annarrar sambærilegrar þjónustu. Umhverfi golfklúbbsins Odds í Urriðavatnsdölum er rómað fyrir náttúrufegurð og veðurblíðu og býður aðstaðan utandyra uppá ýmsa kosti fyrir veitingaþjónustu. Áhugasamir vinsamlegast hafið samband með tölvupósti á póstfangið oddur@oddur.is fyrir miðvikudaginn 20. mars næstkomandi. Vinsamlegast greinið frá reynslu af veitingarekstri og/eða veisluþjónustu.

[Best_Wordpress_Gallery id=”38″ gal_title=”Veitingar”]
< Fleiri fréttir