• 1. Object
  • 2. Object

6° - NA 4.3 m/s

585 0050

Book Tee Times

COLLAB LIÐAKEPPNI GO

1: Þátttökurétt hafa meðlimir GO sem eru með gilda forgjöf.

2: Leiknar eru 4 umferðir (mót) og lokamótið telur tvöfalt, bæði sem stakt punktamót og sem besta skor liðs, alls telja þrjú bestu mót til stiga í heildarkeppni.

3: Fjöldi leikmanna í hverju liði mega vera að hámarki 6, það mega allir spila í hverju móti og telja tvö bestu skor liðsins í punktakeppni og besta lið telur í (greensome-betri bolta mótunum) en í lokamóti sumarsins þar sem leikið er nýtt afbrigði í mótinu telur aukalega besta skor leikmanns liðs á holu.

4. Ekki mega vera fleiri en tveir kylfingar sama liðs í sama ráshóp.

5: Ef lið eru jöfn í móti (skor tveggja bestu leikmanna/liða) þá telur þriðji leikmaðurinn/þriðja lið, síðan fjórði svo fimmti og síðan sjötti leikmaður í punktakeppni og í parakeppni (Greensome/betribolti) skal lið tvö telja næst og svo lið þrjú ef skera þarf úr um sigurvegara. Ef ekki er hægt að fá úrslit með þessum aðferðum er varpað hlutkesti. 

6: Ef lið eru jöfn að stigum í lok mótaraðarinnar skal fjórða mótið telja, svo fimmta mót ef með þarf. Svo hlutkesti.

7. Hámarksleikforgjöf er sem hér segir: Karlar: 28 og Konur 32

8. Veitt eru verðlaun fyrir 10 efstu sætin í liðakeppninni.

9. Veitt eru verðlaun fyrir næst holu í öllum mótunum á par 3 brautum vallarins.
Lengsta teighögg karla og lengsta teighögg kvenna í öllum mótunum.
Ef fleiri en einn kylfingur er með mælingu jafnlanga þá úrskurðast samkvæmt reglum um mótahald GO. Ýmis aukaverðlaun verða svo veitt eins og safnast saman í sarpinn í sumar.

10: Ef ágreiningur kemur upp þá skal senda skriflega öll erindi á netfangið afgreidsla@oddur.is

Til að skrá lið þarf að senda inn eftirfarandi upplýsingar:
Nafn liðs: (Dæmi) Fyrirsæturnar)
Nafn og liðsnúmer allar leikmanna,
​Tilgreina þarf fyrirliða(tenglið) og þarf netfang að fylgja sem og gsm númer.

 

 

Heimilt er að gera breytingar á keppnisliðum með eftirfarandi hætti:
– Skipta má út eða bæta liðsmönnum við lið fram að þriðju umferð mótsins. Leikmenn liðs sem eru skráðir þegar þriðja umferð er leikin eru endanlegir leikmenn liðsins í síðustu umferðunum. 
Leikmaður getur ekki leikið með fleiri en einu liði.
Leikmanni sem skipt er út getur ekki komið aftur inn í liðið né í annað lið. 

Mót nr.1: 
Miðvikudagurinn 27. Júní. (punktakeppni)

​Rástímar frá 11:00 – 18:30*
Skráning opnar 20. júní kl. 13:00

Mót nr.2: 
Þriðjudagur 18. júlí. (betri bolti)

Rástímar frá 11:00 – 18:30*
 Skráning opnar 30. júní kl. 13:00
 
Mótið nr. 3: 
Þriðjudagurinn 22. ágúst. (greensome)

Rástímar frá 11:00 – 18:00*
Skráning opnar 14. ágúst kl. 13:00
 
Mót nr.4/5: (Lokahóf um kvöldið)
Laugardagurinn 2. september. (Punktakeppni og besta skor liðs)
Rástímar frá 8:30 (Allir teigar í einu)  
Skráning opnar 23. ágúst kl. 13:00

*rástímar eru til viðmiðunar og geta hliðrast til í samræmi við skráningu í mótin og aðra dagskrá á vellinum.

Mótsstjórn skipa:
Laufey Sigurðardóttir formaður mótanefndar, 
Ægir Vopni Ármannsson
Halldór Einir Smárason
Jón Bjarki Sigurðsson
Sigríður Björnsdóttir Birnir

Tökum þátt og eigum skemmtilegt sumar saman.

 

Stadarreglur-URRIDAVOLLUR-2023