• 1. Object
  • 2. Object

11.6° - NNV 6.2 m/s

585 0050

Book Tee Times

17. júní greensome-mótið

Við ætlum að halda í hefðina og slá til golfveislu á 17. júní til að fagna þjóðhátíðardeginum og eiga saman góða stund í Golfgleði GO. Ræst er út af öllum teigum klukkan 9:00, leikið er greensome þar sem tveir skipa lið saman, morgunverður fyrir leik og hádegisverður að loknu móti og allt saman innifalið í mótsgjaldi. Við lofum kannski ekki teiggjöf en líklegt að við reynum að hafa hana með því hún gleymdist í síðasta móti :).

Hæ, hó, jibbí, jei og jibbí, jei. 
Skráning í gangi og lýkur 16. júní kl. 18.00.

Þeir leikmenn sem mynda par þurfa að skrá sig hver á eftir öðrum í sama holl.

RÆST VERÐUR ÚT AF ÖLLUM TEIGUM KLUKKAN 9:00.

MÆTING Á SVÆÐIÐ KLUKKAN 8:00 ALLIR TILBÚNIR 8:45 🙂
ILMANDI RÚNSTYKKI OG KAFFIBOLLI BÍÐUR ÞÍN ÁÐUR EN HALDIÐ ER AF STAÐ ÚT Á VÖLL.

AÐ LOKINNI KEPPNI ER SVO MATUR Í GOLFSKÁLA.

GLÆSILEG VERÐLAUN FYRIR ÞRJÚ EFSTU SÆTIN.

NÁNDARVERÐLAUN Á ÖLLUM PAR 3 BRAUTUM SEM ERU: 4. 8. 13. og 15.

LENGSTU TEIGHÖGG KARLA Á 11. braut OG KVENNA Á 3. braut

LEIKFYRIRKOMULAG ER GREENSOME, ÞAR SEM TVEIR LEIKA SAMAN Í LIÐI OG MÁ LIÐIÐ VERA SKIPAÐ EINS OG HVERT LIÐ VILL. KONUR SAMAN, KARLAR SAMAN, FEÐGIN, MÆÐGIN, UNGUR GAMALL, PÖR, HJÓN EÐA EKKI HJÓN.  

HVERNIG SPILUM VIÐ GREENSOME….
TVEIR LEIKMENN LEIKA SAMAN Í GREENSOME. BÁÐIR SLÁ AF TEIG OG VELJA SÍÐAN BETRA TEIGHÖGGIÐ. EFTIR ÞAÐ ER SLEGIÐ TIL SKIPTIS, SÁ SEM ÁTTI TEIGHÖGGIÐ SEM VAR EKKI VALIÐ SLÆR ÞÁ ANNAÐ HÖGGIÐ OG SVO KOLL AF KOLLI ÞANGAÐ TIL LEIKMENN KLÁRA HOLUNA.

MÓTSGJALD EINUNGIS 5000 kr. á mann.

INNIFALIÐ Í MÓTSGJALDI: MORGUNHRESSING OG MATUR AÐ LOKNU MÓTI.

Til að mynda liðsforgjöf fær liðið 40% af leikforgjöf hærri leikmans og 60% af lægri leikforgjöf.

< Fleiri fréttir