• 1. Object
  • 2. Object

7.1° - SSV 4.1 m/s

585 0050

Book Tee Times

Fatnaður sjálfboðaliða á EM í sumar

Golfklúbburinn Oddur hefur gengið frá samkomulagi við umboðsaðila NikeGolf á Íslandi sem mun útvega klúbbnum fatnað fyrir starfsmenn og sjálfboðaliða Evrópumóts kvennalandsliða í golfi sem fram fer á Urriðavelli í sumar.

Um er að ræða fagurgræna peysu frá Nike sem verður merkt bæði merki mótsins og Golfklúbbnum Oddi. Svo sannarlega eiguleg eign fyrir sjálfboðaliða og starfsmenn mótsins. Allir sjálfboðaliðar og starfsmenn mótsins fá flíkina endurgjaldslaust.

Þeir sem hafa skráð sig sem sjálfboðaliðar eru hvattir til að koma við í golfskálanum á Urriðavelli og máta flíkina svo hægt sé að áætla hlutfall stærða. Opið er á skrifstofutíma hér á Urriðavelli. Þeir sem hafa áhuga á því að skrá sig sem sjálfboðaliðar geta gert það með því að smella hér.

Meðfylgjandi eru myndir af flíkinni hér að neðan í grábláu en þær sem klúbburinn fær sendar verða dökkgrænar og endurspegla lit Golfklúbbsins Odds.

NIKE-DRI-FIT-1-2-ZIP-LS-TOP-726574_449_A

NIKE-DRI-FIT-1-2-ZIP-LS-TOP-726574_449_B

< Fleiri fréttir