• 1. Object
  • 2. Object

10.8° - NNV 6.9 m/s

585 0050

Book Tee Times

Ný námskeið Golf Akademíu Odds hefjast í janúar 2019

Það er alltaf gaman að koma sér af stað fyrir vorið og komandi sumar í golfinu og tilvalið að byrja árið undir góðri leiðsögn okkar frábæru kennara. Golf Akademía Odds býður upp  á tvö golfnámskeið sem fram fara á virkum dögum og hefjast í janúar 2019. Annað námskeiðið er kennt á mánudögum en hitt á þriðjudögum og fimmtudögum. Um er að ræða 10. skipta námskeið þar sem farið verður yfir flest atriði golfsins. Í hverri viku verða 3-4 stöðvar þar sem farið verður yfir verkefni dagsins og því ætti að vera hægt að taka á öllum þáttum golfsins og námskeiðin henta bæði byrjendum og lengra komnum.  

Verð á námskeið er 30.000 kr.  Kennarar: Phill Hunter og Rögnvaldur Magnússon
Skráning á mpgolfkennsla@hotmail.com eða í síma 618-1897

Námskeið 1

Aðstaða: Knattspyrnuhöllin Kórinn Kópavogi
Tímasetning: Námskeið 1: Mánudagar: kl: 13:00 – 14:00

Dagsetningar:
14. – 21. – 28. janúar
11. – 18. – 25 . febrúar
4. – 11. –  18. – 25. mars
Nánara skipulag:
14. janúar: Stefnumótun í púttum
21. janúar: Sveiflan
28. janúar: Lengdarstjórnun í púttum
11. febrúar: Vippæfingar
18. febrúar: Sveiflan
25. febrúar: Erfið vipp
4. mars: Pitch
11. mars: Sveiflan
18. mars: Teighögg og trékylfuhögg
25. mars: Vipp og pútt


Námskeið 2

Aðstaða: Knattspyrnuhöllin Kórinn Kópavogi
Tímasetning: Námskeið 2: þriðjudagar og fimmtudagar: kl: 12:00 – 13:00

Dagsetningar:

15. – 17. – 22. – 25. janúar
7. – 12. – 14. – 19. – 21. – 26.  febrúar
Nánara skipulag:
15. janúar: Stefnumótun í púttum
17. janúar: Sveiflan
22. janúar: Lengdarstjórnun í púttum
25. janúar: Vippæfingar
7. febrúar: Sveiflan
12. febrúar: Erfið vipp
14. febrúar: Pitch
19. febrúar: Sveiflan
21. febrúar: Teighögg og trékylfuhögg
26. febrúar: Vipp og pútt

< Fleiri fréttir