SKRÁNINGARREGLUR RÁSTÍMA
Það er tilvalið að rifja upp skráningarreglur okkar um rástíma svona í upphafi tímabils. Urriðavöllur er takmörkuð auðlind sem mikilvægt er að félagsmenn beri virðingu fyrir. Afskráningar eru óhemju tíðar og eins og félagsmenn hér og í öðrum klúbbum hafa fundið, er mikið um hamstur á rástímum og afbókanir óhemju tíðar.
Markmið okkar með skráningarreglum og tilmælum er að tryggja jafnræði félagsmanna við rástímabókanir og treystum við á tillitsemi félagsmanna í garð annarra.
Fyrst um sinn mun fyrirvari til afskráninga vera tvær klukkustundir.
Eins og gefur að skilja þarf að vera svigrúm til þess að félagsmaður geti bókað sig á lausan rástíma sem afbókaður er og því þurfa afskráningar að fara fram með góðum fyrirvara. Afskráningar skulu fara fram í gegnum Golfbox, en einnig er hægt að hringja inn afskráningu.
Ef afbókun berst innan tveggja klukkustunda frá bókuðum rástíma verður skráð no-show á viðkomandi.
Þeim tilmælum er komið á framfæri við félagsmenn að þeir skrái sig ekki í rástíma nema þeir hafi raunverulega ákveðið að spila, en ekki á forsendu um að þeir vilji eiga möguleika á að spila og sjá svo til samdægurs.
Við mælumst til þess við félagsmenn að þeir leyfi ekki öðrum að skrá þá í rástíma nema þeir hafi samþykkt að mæta í rástímann sjálfir. Komi til þess að sá sem bókar rástímann sé að nota nöfn annara án þeirra vitneskju, er heimilt að láta þann sem bókar í rástímabann. Misnoti félagsmaður rástíma t.d. með því að láta annan aðila mæta í stað þess sem bókaður er telst það skýrt brot á bókunarreglum og starfsmönnum er heimilt að vísa viðkomandi leikmanni af vellinum, innheimta vallargjöld og banna viðkomandi félagsmann og leikmann frá frekari bókun á rástíma.
Hver félagsmaður getur skráð sjálfan sig og allt að þrjá aðra meðspilara að teknu tilliti til mismunandi tímafresta sem gilda hverju sinni um skráningar félagsmanna og utanfélagsmanna. Félagsmenn í GO hafa 30 daga bókunarrétt en gestir 3 daga.
- Fari leikmaður af stað án þess að greiða vallargjald er starfsmönnum heimilt að vísa viðkomandi leikmanni af vellinum, innheimta vallargjöld og banna viðkomandi frá frekari bókun á rástíma.
- Bókanir rástíma fara fram í gegnum Golfbox samkvæmt þeim skilmálum sem þar gilda. Samkvæmt notendaskilmálum Golfbox er óheimilt að bóka rástíma með hvers kyns hugbúnaði, þ.m.t. svokölluðum skriftum, sem hannaðar hafa verið til að skrá eða auðvelda skráningu rástíma í Golfbox og er til þess fallinn að veita viðkomandi forskot umfram aðra við rástímaskráningu.
- Við minnum á mikilvægi þess að kylfingar fari ekki á undan sínum ráshóp af stað eða fari af stað á öðrum teig en leikur skal hefjast á. Eins og gefur að skilja eru miklar líkur á því að aðrir hafi ekki möguleika á að nýta sér þennan þá ófullmannaða bókaða tíma og leikhópurinn sem eftir stendur getur verið í leiðinlegum takti ef allir aðrir tímar eru fullbókaðir á undan og eftir.
- Eins og gefur að skilja er góð regla að mæta tímalega á svæðið og sérstaklega á teig, mikilvægt er að hefja ekki leik fyrr en rástími viðkomandi leikhóps er kominn til að halda góðum takti á vellinum.
Staðfesting á rástíma
Áður en leikur er hafinn skal leikmaður staðfesta mætingu í rástíma annað hvort í gegnum Golfbox app eða með skráningar QR kóða sem staðsettur er í anddyri golfskálans. Hægt er að leita aðstoðar í golfverslun GO þar sem starfsfólk er til aðstoðar ef þörf er á. Athugið að kylfingur ber sjálfur ábyrgð á því að sinn rástími sé staðfestur. Hver og einn kylfingur þarf að staðfesta sig.
ATHUGIÐ AÐ ÓSTAÐFESTUR RÁSTÍMI FELLUR UNDIR NO-SHOW
Viðurlög við brotum:
- 1 brot, áminning
- 2 brot, áminning
- 3 brot, lokað fyrir rástímaskráningu í 7 daga
- ítrekuð brot fara fyrir aganefnd
Fyrirtæki og styrktaraðilar sem bóka rástíma þurfa að gera grein fyrir sér í afgreiðslu áður en leikur hefst. |