19/06/2025
Opnað hefur verið fyrir skráningu í meistaramót GO 2025.
Mótið fer fram dagana 5. – 12. júlí og endar á glæsilegu standandi lokahófi laugardagskvöldið 12. júlí.
Mótsgjald fyrir 4 daga mót er 9.800.- kr.
Mótsgjald fyrir 3 daga mót er 8.800.- kr.
Mótsgjald fyrir 2 daga mót er 7.800.- kr.
Lokahóf er innifalið í mótsgjaldi.
Smá breyting er á reglugerð í mótinu í ár. Til að bregðast við auknum fjölda þurfum við að hafa heimild til að beita niðurskurði á lokadegi mótsins svo allir keppendur komist í hús fyrir lokahóf, þegar skráningu líkur í flokka mótsins þá verður tilkynnt hvort niðurskurður verður í ákveðnum flokkum.
Nýr flokkur eldri kylfinga 75+ þar sem leikin er punktakeppni í kvenna og karlaflokki bætist við flokkaskiptingu og einungis eru leiknir 2 dagar í því móti .
Hægt er að kynna sér reglugerðir og skipulag rástíma hér fyrir neðan.
Áætlun skipulag rástíma 2025 Reglugerð meistaramóts 2025 útg 1