29/06/2025
Það var heldur betur barátta um efstu sætin í fyrsta mótinu í ár í COLLAB liðakeppni GO og ljóst að baráttan verður mikil og spennandi allt fram á síðasta högg í lokamóti. Metskráning er í liðakeppnina í ár en alls tóku 36 lið þátt í fyrsta mótinu.
Liðið Míron með þær stöllur Camillu Kristjánsdóttur og Ingibjörgu Sandholt í fararbroddi stóð uppi sem sigurvegari með alls 82 punkta. Besta skor einstaklings var hjá Sigurði Orra Hafþórssyni sem nældi sér í 45 punkta og hann verður greinilega að hvetja sína menn áfram en það skilaði liðinu hans einungis í 6. sæti.
Við hvetjum öll skráð lið til að skrá sig í mót nr. 2 sem fer fram 1. júlí næstkomandi og þar sem einungis þrjú mót af sex telja til heildarstiga í ár er enn hægt að bæta við liðum og skráningar skulu sendast á afgreidsla@oddur.is
Hér fyrir neðan er heildarstaða eftir fyrsta mót.
Collab 1 öll allir