29/06/2025
Eins og félagsmenn þekkja komu flatir Urriðavallar ekki vel undan vetri í ár. Snemma í vor var nokkuð ljóst að í það minnsta fimm flatir væru mjög illa farnar og aðra flatir veikar í sprettu. Vonir stóðu til að flestallar flatir kæmu hratt til með hækkandi hita en svo varð ekki raunin.
Mikið hefur verið rætt um hvers vegna Urriðavöllur kom áberandi verst undan í ár, svarið er einfalt, dauði eða skemmdir vegna kals, en ástæðurnar eru ansi flóknar.
Kal notum við um allar skemmdir eða dauða sem má rekja til kulda á veturna. Ýmsar tegundir kals eru til t.d. frost-, þurr-, svellkal o.s.frv. Dauða á grasi má yfirleitt rekja til fleiri en eins atburðar “kals“.
Vetrarþol grastegunda er mismunandi og fer minnkandi eftir sem líður á veturinn. Þótt veturinn hafið verið mildur þá henta miklar sveiflur í veðri ekki öllum grastegundum. Þar má sérstaklega nefna tegundina Poa Annua eða Varpasveifgras sem hefur frekar lélegt vetrarþol. Varpasveifgras er ein aðal grastegundin í flötum Urriðavallar, ekki vegna vals heldur er þetta sú grastegund sem getur spírað við lágt hitastig, undir mikilli umferð/álagi og skríður inn í dauða bletti og boltaför. Varpasveifurinn er algeng grastegund í flötum golfvalla og getur myndað flotta púttflöt eins og kylfingar hafa upplifað undanfarin ár en vetrarþol plöntunar mætti vera betra.
Í vor settum við gróðurdúk yfir flatirnar með það að markmiði að minnka hitatap, verja grasið gegn vindi og halda raka. Sáð var nokkrum sinnum með Tunglvingli og língresis blöndu og fengum við nokkuð góða spírun undir gróðurdúknum. Þetta eru línurnar sem eru svo greinilegar í flötunum í dag.
Baráttan við varpsveifinn er endalaus og heldur áfram. Okkar helsta vopn er áframhaldandi yfirsáning og skapa þannig aðstæður sem styðja við túnvingul og língresi umfram varpasveifinn. Þetta er ansi fín lína þar sem veðurfar stjórnar ansi miklu.
Næstu skref eru áframhaldandi sáning, sáning og sáning. Þetta verður viðvarandi verkefni næstu árin en markmiðið er að minnka hlutfall varpasveifs í flötunum. Vænta má að flatirnar loka sér að miklu leiti næstu 2-3 vikurnar. Þá hefjumst við handa að vinna bug á fræhausunum á varparsveifnum sem eru byrjaðir að myndast. Þetta gerum við með léttri sópun og línuskurði (verticut). Þetta er eru regluleg verk vallastarfsmanna og hafa ekki mikil áhrif á leik. Samhliða þéttingu grassvarðar færist svo aukin áhersla á að huga að rennsli og hraða flatanna. Vonumst við til að ná settum markmiðum klúbbsins um rennsli og STIMP 8.6 fljótlega í júlí.
Að lokum vill ég minna á að mikið af okkar starfsfólki er að stíga sín fyrstu skref á vinnumarkaði og við erum stanslaust að þjálfa og leiðbeina þeim. Biðjum við kylfinga að sína þeim þolinmæði og kurteisi þó þau hafi ekki fullan skilning á siðum golfsins.
Ég bið ykkur sérstaklega um að vera dugleg að laga boltaför á flötum og láta torfusnepla í kylfuför og saman náum við þannig að hlúa að vellinum og ná honum aftur á það ról sem við höfum vanist og viljum sjá.
Læt þetta duga í bili.
Tryggvi Ölver
Vallarstjóri