02/03/2026

Virkilega spennandi Golfsýning framundan um næstu helgi, 7. & 8. mars, GOLF EXPO Iceland í Laugardalshöll. Þarna verður að finna fjölda fyrirtækja sem tengjst golfi frá ýmsum hliðum, frábærir fyrirlestrar á staðnum og öruggt að það verður lítið talað um annað en golf, golf og aftur golf.
Allar nánari upplýsingar um sýninguna er að finna inn á heimasíðu hennar GOLFEXPO.IS
Við hvetjum félagsmenn GO til að mæta og taka þátt í gleðinni, saman verður þetta stórt og enn stærra næst ef vel gengur.