Auglýst er eftir íþróttastjóra fyrir Golfklúbbinn Odd
23/03/2026
Golfklúbburinn Oddur óskar eftir metnaðarfullum og framsýnum íþróttastjóra til að leiða íþróttastarf klúbbsins með sérstaka áherslu á að efla barna- og unglingastarf og tryggja faglega og markvissa uppbyggingu golfíþróttarinnar innan Golfklúbbsins Odds. Leitað er að einstaklingi sem hefur skýra sýn, sterka skipulagshæfileika og brennandi áhuga á að þróa golfið áfram á öllum getustigum.
Helstu verkefni
Mótun og framkvæmd heildarstefnu íþróttastarfs Golfklúbbsins Odds, í nánu samstarfi við framkvæmdastjóra og stjórn.
Umsjón með barna- og unglingastarfi, þjálfunaráætlunum og stuðningi við keppnisfólk.
Skipulagning og samhæfing æfinga, námskeiða og fræðslu fyrir börn, unglinga og fullorðna.
Leiðsögn og faglegur stuðningur við þjálfara.
Samstarf við Golfsamband Íslands, bæjarfélag, aðra klúbba og lykilaðila í íþróttastarfi.
Ábyrgð á árlegri starfsáætlun og reglulegri upplýsingagjöf til stjórnenda.
Hæfniskröfur
Menntun og/eða reynsla sem nýtist í starfi.
Reynsla af íþróttastjórnun, þjálfun eða verkefnastjórnun innan íþróttahreyfingar er kostur.
Sterk leiðtogahæfni, skipulagshæfileikar og hæfni til að vinna markvisst og sjálfstætt.
Frábær samskiptahæfni og geta til að vinna með fjölbreyttum hópum.
Framsækinn hugsunarháttur og hæfni til að byggja upp faglegt og jákvætt starfsumhverfi.
Við bjóðum
Áhrifaríkt og fjölbreytt starf í öflugu íþróttafélagi.
Tækifæri til að móta framtíð golfíþróttarinnar innan Golfklúbbsins Odds.
Samstarf við fagfólk og sterkt samfélag félagsmanna.
Góð starfskjör í samræmi við reynslu og hæfni.
Helstu verkefni og ábyrgð
Yfirumsjón með barna- og unglingastarfi
Golfkennsla
Menntunar- og hæfniskröfur
PGA menntun eða sambærileg reynsla sem nýtist í starfi.