6.3° - ASA 7 m/s

585 0050

Book Tee Times

PISTILL VALLASTJÓRA

Staðan á vellinum – Apríl 2026

 

Eftir umhleypingasaman vetur, sem hefur ekki verið sérlega hagstæður grasplöntunni, virðist völlurinn þó koma þokkalega undan vetri. Grasið er farið að taka við sér og fyrstu grænu tónarnir farnir að sjást á brautum. Flatirnar eru á lífi en það tekur tíma að meta nákvæmt ástand þeirra. Við sjáum þó fram á mun betra vor en í fyrra, þótt áhyggjur okkar beinist sérstaklega að flötum á 3. 7. og 14. braut.

Áætluð opnun
Miðað við stöðuna í dag gerum við ráð fyrir að opna völlinn um miðjan maí. Þetta er áætluð tímasetning byggð á reynslu síðustu ára, en eins og ávallt ræður náttúran og veðrið för. Við biðjum félagsmenn um að sýna þolinmæði á meðan völlurinn tekur við sér.

Ástand jarðvegs og næstu verk
Eftir miklar leysingar í síðustu viku, þar sem völlurinn fór nánast á kaf, er frostið nú að fara úr jörðu. Enn situr þó 20–30 cm frostlag í jarðveginum sem gerir völlinn mjög mjúkan og viðkvæman. Við bíðum þess að völlurinn beri tækin okkar svo við getum klárað vetrarverkin og hafið vorverk af fullum krafti. Á meðan er unnið að verkefnum sem hægt er að sinna út frá vegakerfi vallarins.

Næstu skref á vellinum:

  • Áburðargjöf: Borinn verður áburður á flatir og teiga.
  • Söndun: Flatir og teigar verða sandaðir um leið og svörðurinn þolir vinnuvélar. Sandurinn nýtir varmann frá sólinni og flýtir fyrir því að grasið taki við sér.

Vetrarverkin á lokametrunum:
Mikið hefur verið unnið í vetur til að bæta aðstöðuna og rekstraröryggi:

  • Innviðir: Ný heimtaug í samvinnu við HS Veitur eykur öryggi og styður við framtíðar róbótavæðingu vallarins. Fyrsti áfangi (lögn frá spennistöð þar sem skátaskálinn var að Lærling) er langt kominn.
  • Brautir og teigar: Nýr teigur (46) á 17. braut og nýir gervigrasteigar á 6., 7. og 9. holu á Ljúflingi.
  • Æfingasvæði: Nýtt gervigras framan við básana á Lærlingi.
  • Stígar: Lagt hefur verið malbik á stíginn á milli 9. og 18. brautar.

Við hlökkum mikið til að taka á móti ykkur í vor.

Kær kveðja

Tryggvi

< Fleiri fréttir