11/05/2026

Boðað er til vorfundar í golfskálanum fimmtudaginn 14. maí kl. 11:00.
Við munum kynna sumarstarfið en meginþungi fundarsins verður kynning á stækkun golfvallarsvæðisins í Urriðavatnsdölum.
Bruce Charlton yfirhönnuður vallarins mun tengjast fundinum og kynna fyrir félagsmönnum hönnun á stækkun vallarins, sem nú liggur fyrir að mestu fyrir.
Ef allt gengur upp á næstu vikum má búast við því að 1. áfangi við verkið hefjist í sumar.