24/05/2026

LIÐAKEPPNI GO 2026 – Thule mótaröðin
Það er komið að skráningu í liðakeppni GO 2026, við ætlum að nota google form og biðjum ykkur því um að ská liðin ykkar í gegnum hlekkinn hér fyrir neðan. Ein stór breyting er milli ára og felur hún það í sér að heimilt er að vera með 7 leikmenn skráða í sitt lið en einungis 6 leikmenn keppa hverju sinni. Hægt er að lesa keppnisreglur og skilmála hér fyrir neðan. Fyrsta mót er áætlað 2. júní og skráning í það mót hefst 28. maí klukkan 10:00

1: Þátttökurétt hafa meðlimir GO sem eru með gilda forgjöf.
2: Leiknar eru 5 umferðir (mót) og lokamótið telur tvöfalt, bæði sem stakt punktamót og sem besta skor liðs, alls telja þrjú bestu mót til stiga.
3: Fjöldi leikmanna í hverju liði mega vera að hámarki 7 –
Athugið að einungis keppa 6 leikmenn liðs í hverju móti og telja tvö bestu skor leikmanna liðsins í punktakeppni og besta lið telur í (greensome-betri bolta mótunum).
Í lokamóti sumarsins er leikið tvöfalt mót þar sem leikin er punktakeppni, tvö bestu skor telja og að auki afbrigði þar sem við tökum besta skor leikmanns liðs á holu og telur samanlagt besta skor leikmanna aukalega sem eitt mót.
4. Ekki mega vera fleiri en tveir kylfingar sama liðs í sama ráshóp.
5. Ef lið eru jöfn í móti, skor tveggja bestu leikmanna/liða) þá telur þriðji leikmaðurinn síðan fjórði leikmaðurinn svo fimmti og síðan sjötti leikmaður í punktakeppni. Í parakeppni (Greensome/betribolti) skal lið tvö telja næst og svo lið þrjú ef skera þarf úr um sigurvegara.
Ef ekki er hægt að fá úrslit með þessum aðferðum er varpað hlutkesti.
6: Ef lið eru jöfn að stigum í lok mótaraðarinnar skal fjórða mótið telja, svo fimmta mót ef með þarf. Svo hlutkesti.
7. Hámarksleikforgjöf er sem hér segir: Karlar: 28 og Konur 32
8. Veitt eru verðlaun fyrir 10 efstu sætin í liðakeppninni.
9. Veitt eru verðlaun fyrir næst holu í öllum mótunum á par 3 brautum vallarins.
Aukalega eru svo veitt verðlaun fyrir lengsta teighögg karla og lengsta teighögg kvenna í lokamótinu.
Ef fleiri en einn kylfingur er með mælingu jafnlanga þá úrskurðast samkvæmt reglum um mótahald GO. Ýmis aukaverðlaun verða svo veitt eins og safnast saman í sarpinn í sumar.
10: Ef ágreiningur kemur upp þá skal senda skriflega öll erindi á netfangið afgreidsla@oddur.is
11: Leikmenn liðs sem eru skráðir þegar þriðja umferð er leikin eru endanlegir leikmenn liðsins í síðustu umferðunum. Leikmaður getur ekki leikið með fleiri en einu liði. Hafi lið ekki verið fullskipað með sjö leikmönnum fyrir upphaf 3. umferðar er heimilt að fylla lið sitt.
Mót nr.1: Þriðjudagurinn 2. Júní. (punktakeppni) Tvö skor telja.
Rástímar frá 11:00 – 18:30* Skráning opnar 28.maí kl.10:00
Mót nr.2: Mánudagurinn 15. júní. (Betri bolti – Punktar) Eitt skor liðs telur.
Rástímar frá 11:00 – 18:30* Skráning opnar 5. júní kl.10:00
Mótið nr. 3: Þriðjudagurinn 21. júlí. (punktakeppni) Tvö skor telja.
Rástímar frá 11:00 – 18:30* Skráning opnar 13.júlí kl.10:00
Mót nr. 4. Þriðjudagurinn 4. ágúst (Greensome – Punktar) Eitt skor liðs telur.
Rástímar frá 11:00 – 18:30* Skráning opnar 23. júlí kl.10:00
Mót nr.5/6: (Lokahóf um kvöldið) Laugardagurinn 29. ágúst. (Punktakeppni – Eitt skor liðs telur og besta skor liðs á holu telur)
Ræst út kl: 9.00 (Allir teigar í einu)
Skráning opnar 21. ágúst kl. 10:00
*rástímar eru til viðmiðunar og geta hliðrast til í samræmi við skráningu í mótin og aðra dagskrá á vellinum.
Mótsstjórn skipa: Valdimar Júlíusson, Svavar Geir Svavarsson, Þórður Ingason.
Tökum þátt og eigum skemmtilegt sumar saman.