06/06/2026

Fyrsta umferð í THULE liðakeppni GO var leikinn síðastliðinn þriðjudag í afar mildu og góðu veðri sem við almennt höfum ekki vanist í þessari mótaröð en fögnum að sjálfsögðu. Alls eru 37 lið skráð til leiks og keppendur frá 35 þeirra mættu til leiks en 32 lið fengu stig í umferðinni þar sem þrjú lið náðu ekki að uppfylla kröfur um að tveir liðsmenn skiluðu sér í hús.
Flott skor var í mótinu þrátt fyrir erfiðar aðstæður á flötum vallarins í upphafi sumars og ljóst að hægt er að skora völlinn. Staðarreglur voru uppfærðar að aðlagaðar að nýrri reglugerð GSÍ, sem kveður sterkt um að leyfa engar færslur á braut nema nauðsyn krefji og algjört bann er við færslum á flötum vallarins og keppendur virtust ekki eiga í vandræðum með að aðlaga sig að þeim.
En þá að úrslitum fyrsta mótsins. Liðið Sveiflugengið með nefndarkonur og fylgisveina kvennanefndar byrja sumarið ekki bara í kvennastarfinu með látum heldur létu vel að sér kveða í fyrsta móti sumarsins. Líney Sveinsdóttir átti frábæran dag með 48 punkta og fékk stuðning frá Guðbjörgu Evu með 32 punkta til að koma liðinu í 80 punkta í fyrsta móti og sigra nokkuð örugglega næstu lið sem röðuðu sér saman með 77 punkta. Frábært hjá Líney og hennar sveiflugengi.
Til að skera úr um jöfn lið í næstu sætum og niður töfluna þá er fyrst farið í þriðja leikmann svo fjórða og koll af kolli ef með þarf og í öðru sæti með 77 punkta varð lið Áttaviltra sem greinilega fundu brautir og holur vallarins þennan dag. Lið Sex Urriða hafnaði í þriðja sæti með síðri fjórða mann og lið Holræsahákarlanna hafnaði í 4. sæti einnig með 77 punkta.
Hægt er að smella á þessa skrá hér til að skoða heildarúrslit í fyrsta móti.