27/06/2026

Það var hörkukeppni í gangi í öðru móti í liðakeppni GO sem leikið var við kjöraðstæður þann 15. júní síðastliðinn og ekki seinna vænna en að birta þau úrslit svo liðin sem skráð eru stilli sína strengi fyrir komandi átök, fyrst er að nýta meistaramótið sem góða upphitun og svo mæta galvösk þann 21. júlí þegar 3. umferð verður leikin í liðakeppninni.
Lið Catorce með reynda keppendur innanborðs minnti vel á sig og sigraði með frábæru skori 49 punktum en leikformið var Greensome. Jón Ævarr Erlingsson og G. Kári Ellertsson leiddu vagninn fyrir lið sitt, bravó fyrir þeim. Í öðru sæti varð svo Landsliðið með Hjört Frey og Maríu Rúnarsdóttur innanborð í fremsta vagni en þau léku á 48 punktum líkt og Fyrirsæturnar Dídí Ásgeirsdóttir og Bergþóra María Bergþórsdóttir sem einnig léku á 48 punktum en fengu ekki alveg jafn mikinn stuðning frá sínu næst besta liði, sem telur þegar jafnt er og því urðu þær að sætta sig við þriðja sætið.
Hér er eru úrslit móts númer tvö og heildarstaðan núna birt eftir tvö fyrstu mótin. Næsta mót verður 21. júlí og leikformið þar punktakeppni.