11.7° - SSV 5 m/s

585 0050

Book Tee Times

Meistaramótið – þegar félagið kemur saman

Það er fátt sem einkennir íslenskt golfsumar betur en Meistaramót Golfklúbbsins Odds. Fyrir mér er þetta hápunktur tímabilsins. Auðvitað er keppt af metnaði, en mótið er fyrst og fremst hátíð félagsins. Þar hittum við félaga sem við höfum kannski ekki séð lengi, kynnumst nýjum félagsmönnum og deilum þeirri ánægju sem felst í því að spila golf á Urriðavelli. Og auðvitað verður reglubókin stundum að aðalumræðuefninu þegar einhver dregur fram reglu 14.3.

Í ár skartar vallarsvæðið sínu fegursta. Starfsfólk okkar hefur unnið frábært starf og það sést hvert sem litið er. Flatirnar hafa hins vegar enn ekki náð sér að fullu eftir erfiða vetur. Í samráði við vallarstjóra og starfsfólk, var ákveðið að velja lausnir sem skila sterkari og heilbrigðari flötum til framtíðar fremur en skyndilausnum sem hefðu aðeins falið vandann um stund. Sú ákvörðun krefst þolinmæði, en ég er sannfærður um að hún er sú rétta.

Urriðavöllur er einn mest spilaði golfvöllur landsins. Á hverju ári eru leiknir þar yfir 40.000 hringir. Það er álag sem fáir golfvellir á Norðurlöndum þurfa að þola og jafnvel margir vinsælir vellir sunnar í Evrópu sjá ekki á heilu ári. Björtu sumarnæturnar gefa okkur einstakt tækifæri en þær kalla líka á aukna ábyrgð.

Þess vegna skiptir framkoma hvers og eins máli. Nú þegar flatirnar eru viðkvæmar er mikilvægt að fara ekki með kerrur eða golfbíla of nærri þeim, forðast að ganga milli flatar og glompu þar sem grasið er viðkvæmast og virða reipi, stíga og aðrar leiðbeiningar sem starfsfólkið hefur sett upp. Smá tillitssemi frá hverjum kylfingi skilar sér margfalt til allra þeirra sem spila á eftir.

Við sem höfum spilað golf lengur berum líka ákveðna ábyrgð. Við eigum að leiðbeina nýjum félagsmönnum, minna á að laga boltaför, jafna kylfuför og ganga vel um völlinn. Það eru þessi litlu atriði sem gera stóra gæfumuninn þegar tugir þúsunda hringja eru leiknir á sama velli á hverju ári.

Ég vil einnig biðja alla félagsmenn að sýna starfsfólki okkar virðingu. Það vinnur oft langa daga við að skapa þær aðstæður sem við njótum. Fylgjum fyrirmælum þeirra, sýnum tillitssemi og tryggjum að það geti unnið störf sín á öruggan hátt.

Það er þó eitt sem ég vil sérstaklega minna á.

Golfklúbburinn Oddur er ekki fyrirtæki sem selur golf. Hann er félag. Völlurinn er ekki „þeirra“ heldur okkar. Gæði hans ráðast ekki aðeins af vinnu starfsfólksins heldur líka af því hvernig við göngum um hann á hverjum einasta degi. Enginn starfsmaður getur lagað það sem hundruð kylfinga ganga frá af kæruleysi. En ef þúsund félagsmenn leggja hver sitt litla af mörkum verður árangurinn einstakur.

Það er þessi hugsun sem hefur byggt upp Odd. Félagsmenn sem taka ábyrgð, leggja sitt af mörkum og vilja skilja völlinn eftir í betra ástandi en þeir fundu hann.

Ég óska öllum félagsmönnum góðs gengis á Meistaramótinu. Njótið keppninnar, samverunnar og sumarsins og munum að við erum öll hluti af því að gera Odd að þeim golfklúbbi sem við erum stolt af.

Kv. Kári Sölmundarson, formaður GO

< Fleiri fréttir