10/07/2026

Það styttist í að veislunni ljúki og til að klára þessa góðu viku er komið að lokahófinu sem haldið verður hér í golfskálanum á Urriðavelli, laugardagskvöldið 11. júlí. Frábær skráning er í lokahófið og við hleypum inn meðan húsrúm leyfir, tjöldin fara upp í kringum skála ef veður leyfir sem við vonum innilega og til að halda góðri stemmingu í húsinu erum við búin að fá Sóla Hólm í veislustjórn svo einhver verður gleðin.
Við áætlum að loka leikhópar í meistaraflokkum kvenna og karla séu að koma að skála frá 17:30 – 18:30 og því tilvalið að kíkja snemma og skapa smá stemmingu fyrir utan skála og fagna með þeim.
Það má sko sannarlega búast við alvöru veislu frá hOla Mathús þetta kvöld. Fyrir utan góða kokteila, ískaldan bjór eða aðrar fljótandi veigar þá hefur Chef Alfreð talið upp hvern fingrafæðis réttinn af öðrum svo hugurinn flýgur frá Ítalíu og um alla heimsbyggðina og hingað heim áður en allt lendir á hlaðborði hér í lokahófinu.