9.8° - SV 2 m/s

585 0050

Book Tee Times

MEISTARAMÓT GO 2026

Nú er sögulegu meistaramóti GO lokið, en metþátttaka var í ár og alls skráðu sig til leiks 424 kylfingar sem annaðhvort léku ljúlfing eða Urriðavöll og 12 kylfingar gerðust svo frækin að leika í tveimur flokkum fullorðinna og krakkarnir okkar sáust í móti á Urriðavelli og Ljúflingi, svo mikill var áhuginn.
 
Klúbbmeistarar GO 2026 eru þau Rögnvaldur Magnússon og Auður Björt Skúladóttir og við óskum þeim innilega til hamingju með flott mót.
Hægt að smella á þennan hlekk til að sjá stöðu í öllum flokkum. 

Mótið var stútfullt af sigurvegurum, bæði þeim sem kræktu í verðlaun og svo þeim sem náðu niðurskurði, spiluðu með vinum eða kynntust góðu fólki. Hægt er að smella á hlekk í ummælum hér fyrir neðan, til að fara inn á myndasíðu GO og sjá myndir á víð og dreif þessa 8 keppnisdaga.
 
Okkur er þakklæti ofarlega í huga til þeirra sjálfboðaliða sem aðstoðuðu við ræsingu og önnur störf, sem er okkur gífurlega dýrmætt á löngum dögum. Veitingaaðilar HOla mathús fá mikið hrós, veisla alla vikuna, sem og alla daga og það verður erfitt að toppa lokahófið á næsta ári það er víst. (má líka bara vera eins 🙂 )
Tyggvi vallarstjóri og hans frábæra fólki færum við miklar þakkir fyrir þeirra vinnuframlag þessa löngu viku, svo það sé nefnt hefst dagurinn hjá þeim um miðja nótt, og vélar og tæki ræst um 04:00 alla meistaramótsdagana, vá takk.
 
Baldur á Baldursbraut stóð að sjálfsögðu vaktina sem og aðrir í skála og allir eiga svo sannarlega skilið klapp á bakið. Þórður og Halldór, dómararnir okkar fá þakklæti fyrir langa viku og fáar frávísanir 🙂
 
Takk fyrir frábæra viku og til hamingju öll.
 
Kveðja, Stjórn og starfsfólk
< Fleiri fréttir