Reglur við val í keppnissveitir eldri kylfinga kvenna og karla: 50+
9 kylfinga sveit:
Efstu þrír/þrjár i Meistaramót GO 50 + flokki , forgjafarflokki leikmanns eða 1. Flokki, (besta skor högg – meðaltal bestu þriggja hringja).
Efstu þrír leikmenn í Mótaröð fyrir val í keppnissveit* skipa næstu þrjú sæti.
Síðustu þrjú sætin í sveitina eru valin af afreksnefnd og þjálfurum.
6 kylfinga sveit:
Efstu tveir/tvær i Meistaramót GO 50 + flokki , forgjafarflokki leikmanns eða 1. Flokki, *
*(besta skor högg – meðaltal bestu þriggja hringja).
Efstu tveir leikmenn í Mótaröð fyrir val í keppnissveit* skipa næstu tvö sæti.
Síðustu tvö sætin í sveitina eru valin af afreksnefnd og þjálfurum.
Verði sömu leikmenn í efstu sætum í þeim mótum sem velja skal úr, mun afreksnefnd og þjálfarar velja þá leikmenn sem skipa skulu sveit til að fylla upp í keppnissveit. Horfa skal fyrst til meistaramóts GO við val.
Mótaröð fyrir val í keppnissveit *
Skilyrði fyrir þátttöku er að kylfingar skulu gefa kost á sér í keppnissveit á Íslandsmóti Golfklúbba hafni þeir í einu af efstu sætunum eins og valið er um í hverjum flokki.
Karlar 50+ – Íslandsmótið í ár fer fram í Sandgerði GSG, dagana 20. – 22. ágúst
Konur 50+ – Íslandsmótið í ár fer fram á Suðurnesjum GS, dagana 20. – 22. ágúst
Eldri karlar, forgjöf undir 10,0 hafa þátttökurétt í mótaröð fyrir val í sveit
Eldri konur, forgjöf undir 18,0 hafa þátttökurétt í mótaröð fyrir val í sveit
Haldin verða þrjú mót í júlí þar sem tvö mót telja við val í keppnissveit.
Veitt eru stig fyrir 1. – 10 sæti í hverjum flokki í hverju móti. Samanlögð stig leikmanns úr tveimur bestu mótum raða inn í sæti við val í keppnissveit.
Stigagjöfin:
1. Sæti – 12 stig
2. Sæti – 10 stig
3. Sæti – 8 stig
4. Sæti – 7 stig
5. Sæti – 6 stig
6. Sæti – 5 stig
7. Sæti – 4 stig
8. Sæti – 3 stig
9. Sæti – 2 stig
10. Sæti – 1. Stig
Mótsdagar
Afreksnefnd vill hvetja þá kylfinga sem telja sig eiga erindi í keppnissveitir til að taka þátt í þeim mótum sem gilda til vals í keppnissveitir. Þeim kylfingum sem telja sig eiga heima í æfingahóp er velkomið að vera í sambandi við íþróttastjóra GO iris@oddur.is og málið verður skoðað með viðkomandi leikmanni. Almennt skipa æfingahóp hvers árs þeir leikmenn sem kepptu fyrir golfklúbbinn árið á undan. Til viðbótar í æfingahópa er svo skoðuð forgjöf og nýliðun milli ára og íþróttastjóri velur inn í æfingahópa.
Ekki er skipulagt æfingastarf yfir vetrartímann fyrir keppnissveitir á LEK móti golfklúbba 65 + en við gerum okkar besta til að aðstoða þá aðila sem vilja æfa þar með aðgengi að æfingum ef aðstæður leyfa.
Kv. Afreksnefnd GO