25/07/2026

Það var gífurleg góð þátttaka í Opna Bollinger kvennamótinu á Urriðvelli sem leikið var föstudaginn 24. júlí í mildu og góðu veðri og færri konur komust að en vildu. Veðurspá fyrir daginn hafði gefið von um sól en sólin lét aldeilis ekki sjá sig en engu að síður var flott og milt golfveður og almennt stuð á keppendum.
Alls voru 100 konur mættar, ræst var út á öllum teigum samtímis stundvíslega klukkan 9:00 og allar skiluðu sér svo í hús fyrir tvö og tekið var á móti hópnum í léttu Bollinger smakki áður en haldið var í flotta brunch veislu á okkar frábæra veitingastað hér á Urriðavelli, hOla Mathúsi.
Keppt var í tveimur forgjafaflokkum, veitt verðlaun fyrir besta skor, nándarverðlaun veitt á öllum par 3 holum vallarins og aukaverðlaun fyrir næst holu í tveimur á 2. braut vallarins ásamt því að sleggjur dagsins gátu keppt um lengsta teighögg á holum 9 og 14. Hér fyrir neðan eru úrslit mótsins en besta skor kvenna átt María Málfríður Guðnadóttir sem kom í hús á 80 höggum.