11.5° - SSA 6 m/s

585 0050

Book Tee Times

Helgi Sveinsson félagsmaður úr GO hafnaði í öðru sæti á boðsmóti GSÍ fyrir kylfinga með fötlun

Golfmót GSFÍ fór fram á Korpúlfsstaðavelli í dag, þriðja árið í röð, og er mótið nú orðið fastur og vinsæll liður í dagskrá Íslandsmótsvikunnar. Ellefu keppendur mættu til leiks á völlinn sem stóð í fullum skrúða fyrir Íslandsmótið, og eins og undanfarin ár einkenndist dagurinn af gleði, keppnisanda og góðum félagsskap.

Helgi Sveinsson úr golfklúbbnum Oddi á leiðinni á flötina.

Keppt var í punktakeppni með forgjöf en einnig voru veitt sérstök verðlaun fyrir besta skor án forgjafar. Í þeim flokki voru Sigurður Guðmundsson úr Golfklúbbi Sandgerðis og okkar maður, Helgi Sveinsson úr Golfklúbbnum Oddi, jafnir með 81 högg – frábær árangur hjá báðum. Sigurður hafði betur í oddaslag um efsta sætið þar sem úrslitin réðust á seinni níu holunum.

Í sjálfri punktakeppninni, stóð Helgi sig einstaklega vel og hafnaði í öðru sæti með 37 punkta, aðeins einum punkti á eftir sigurvegaranum Kristjáni Páli R. Hjaltasyni úr Golfklúbbi Borgarness sem fékk 38 punkta. Í þriðja sæti varð Björgvin Ingi Ólafsson úr Golfklúbbi Mosfellsbæjar með 34 punkta. Til hamingju með frábæran árangur, Helgi.

Verðlaunahafar punktakeppninnar. Frá vinstri: Kristján Páll R. Hjaltason (1. sæti), Helgi Sveinsson (2. sæti) og Björgvin Ingi Ólafsson (3. sæti).

Verðlaunaafhending mótsins, þar sem einnig var veitt viðurkenning fyrir besta skor án forgjafar.

Samhliða mótinu var einnig boðið upp á golfæfingu fyrir kylfinga með fötlun, sem heppnaðist afar vel og myndaði ásamt mótinu skemmtilega og innihaldsríka dagskrá í aðdraganda Íslandsmótsins í golfi. Á æfingunni áttum svo vitað sé allavega einn flottan fulltrúa sem stefnir á þátttöku í boðsmótinu á næsta ári en þar var á ferð Pálmi Jensen Guðlaugsson. 

Keppendur og gestir nutu góðs dags á Korpúlfsstaðavelli.

Mótið er hluti af mikilvægu og metnaðarfullu starfi GSÍ við að efla mótahald innanlands fyrir kylfinga með fötlun og auka sýnileika þessarar starfsemi. Samtökin hafa um árabil staðið fyrir reglubundnum æfingum í samstarfi við golfklúbba víða um land, og mótið er orðinn árlegur viðburður í Íslandsmótsvikunni, sem hefur reynst frábær viðbót við dagskrána.

Til hamingju með daginn, allir keppendur – og sérstaklega til hamingju með glæsilegan árangur, Helgi.

 

 

 

< Fleiri fréttir