06/10/2026

Golfklúbburinn Oddur og SWEET SPOT golfherma aðstaða í Miðhrauni 24 í Garðabæ sömdu í sumar um afnot af glæsilegri aðstöðu SWEET SPOT fyrir barna og unglingastarf GO. Umfang æfingastarfs GO hefur vaxið gífurlega á síðustu árum og flestar æfingar munu nú færast í SWEET SPOT virka daga milli 15 – 18 og það er mikil tilhlökkun hjá þjálfurum og iðkendum að fá að njóta í toppaðstöðu.
Æfingar munu hefjast í nóvember og standa fram á vorið.