18/10/2026

Það er vissulega opið þegar þetta er skifað og sent út en enginn bókaður í golf og því má færa góð rök fyrir því að loka svæðinu og leyfa vallarsvæðinu að hvíla sig eftir ágang sumarins. Hér voru spilaðir vel yfir 45.000 hringir í sumar og þá eru ótaldir hringir á Ljúflingi sem var vel nýttur í sumar.
Æfingasvæðið okkar Lærlingur verður að sjálfsögðu opið í vetur og hægt að kaupa stakar körfur í boltavélinni sjálfri en þeir sem vilja fylla á boltakort þurfa að klára málið á opnunartíma skrifstofu sem er almennt virka daga frá 9 – 16. Gervigras púttvöllurinn verður að sjálfsögðu opinn í haust, vetur og vor og alveg tilvalið að leika sér þar á blíðviðrisdögum ef þeir láta sjá sig.
Skrifstofan verður lokuð 20 – 29. október en tölvupóstum svarað.
Takk innilega fyrir sumarið.



