Veitingarvald: Stjórn klúbbsins hefur heimild til að veita félagsmönnum og velunnurum heiðursmerki (svo sem silfur- eða gullmerki) og afreksmerki á sérstökum tímamótum, til dæmis á aðalfundum eða afmælum klúbbsins.
Tilnefningar og reglur: Veitingin fer fram í samræmi við sérstakar reglur sem gilda um heiðursmerki félagsins og þarf sérstakt skjal til staðfestingar að fylgja tilnefningu.
Árið 2013 fór fram fyrsta afhending á Gullmerki GO sem og að veitt var fyrsta Heiðursviðurkenning GO. Athöfnin fór fram á 20 ára afmæli Golfklúbbsins Odds.

Óskar G. Sigurðsson – sæmdur gullmerki GO á 20 ára afmæli klúbbsins árið 2013 fyrir framlag sitt til uppbyggingar og vallarmála og sem fyrsti formaður Golfklúbbsins Odds. Óskar var frumherji á uppbyggingarárum klúbbsins og var fyrsti formaður bæði GOF og svo GO þegar ákveðið var að stofna GO svo félagar gætu orðið hluti af Golfsambandi Íslands.
Jón Otti Sigurðsson – sæmdur gullmerki GO á 20 ára afmæli klúbbsins árið 2013 fyrir framlag sitt til uppbyggingar og vallarmála.
Ingjaldur Ásvaldsson – sæmdur gullmerki GO á 20 ára afmæli klúbbsins árið 2013 fyrir framlag sitt til uppbyggingar og vallarmála. Ingjaldur starfaði í fyrstu stjórn GO og til ársins 1997.
Á aðalfundi GO árið 2018 var Ingjaldur Ásvaldsson einnig heiðraður með gullmerki GSÍ fyrir störf sín fyrir klúbbinn
E.T.ehf. – var veitt heiðursviðurkenning GO fyrir framlag sitt við uppbyggingu á vallarsvæði Urriðavallar á uppvaxtarárum þess og fór sú afhending fram á 20 ára afmæli klúbbsins árið 2013. xx tók við viðurkenningunni fyrir hönd E.T. ehf.
Páll Jóhannsson – sæmdur gullmerki GO á 20 ára afmæli klúbbsins árið 2013 fyrir framlag sitt til uppbyggingar og vallarmála. Páll starfaði sem formaður GO frá 1994 – 1998.
Páll S. Kristjánsson – var sæmdur gullmerki GO á 20 ára afmæli klúbbsins árið 2013 fyrir framlag sitt til uppbyggingar og vallarmála. Páll var formaður GO á árunum 2004 – 2009.

Árið 2014 veitti Golfklúbburinn Oddur þremur aðilum Silfurmerki GO og var merkið afhent í lokahófi Meistaramótsins,
Lilja Ólafsdóttir – var sæmd silfurmerki GO í júlí 2014 fyrir að hafa setið í stjórn GO og sinnt ýmsum störfum í nefndum og fyrir klúbbinn í fjölda ára.
Baldur H. Hólmsteinsson – var sæmdur Silfurmerki GO í júlí 2014 fyrir stjórnarstörf og nefndarstörf til fjölda ára.
Þorkell Jónsson – var sæmdur Silfurmerki GO í júlí 2014 fyrir ýmis nefndarstörf fyrir golfklúbbinn til fjölda ára.

Árið 2016 fór fram afhending á Gullmerki GO og einnig var veitt heiðurviðurkenning GO
Hallgrímur Þorsteinsson – var sæmdur gullmerki GO á aðalfundi GO 2016 fyrir störf sín sem formaður GO á árunum 1998 – 2000, Hallgrímur starfaði svo í fjölda nefnda fyrir golfklúbbinn árin þar á undan og eftir ásamt því að vera einn af frumkvöðlum og brautryðjendum við stofnum og á fyrstu árum Golfklúbbsins Odds.
Jóhanna Dröfn Kristinsdóttir – var sæmd Gullmerki GO á aðalfundi GO 2016 fyrir störf sín í stjórn GO á árunum 2004 – 2007, Jóhanna sinnti einnig ýmsum nefndarstörfum fyrir GO á árunum þarna í kring og leiddi uppbyggingu á kvennastarfi GO um árabil ásamt því að taka þátt í keppnisstarfi klúbbsins.
Atli Þ. Stefánsson – fær heiðursviðurkenningu Odds
Oddfellow hreyfingin hefur til fjölda ára lagt mikinn metnað í að gróðursetja trjáplöntur í umhverfi Urriðavallar og Ljúflings. Veg og vanda af þessari vinnu, bæði í ræktun græðlinga og við gróðursetningu, hefur Atli haft. Þá hefur Atli átt þátt í undirbúningi og skipulagi á mannvirkjum og framkvæmdum á svæðinu, s.s. golfskálans,vélageymslu og æfingasvæðis auk þess að vera vallarsstjóra innan handar við ýmis verkefni. Hann Atli er svo sannarlega maðurinn á bak við tjöldin og unnið mikið og óeigingjarnt starf.

Svavar Geir Svavarsson – var sæmdur gullmerki GO í ágúst 2018 á 25 ára afmælisboði klúbbsins fyrir langa stjórnarsetu (12 starfsár á árunum frá 1995 – 2017) ásamt því að hafa sinnt ýmsum störfum í nefndum og fyrir klúbbinn.
Ingi Þór Hermannsson – var sæmdur gullmerki GO á sama viðburði árið 2018 fyrir störf sín fyrir klúbbinn, meðal annars sem formaður GO á árunum 2009–2016