• 1. Object
  • 2. Object

-1000° - ANA 3 m/s

585 0050

Book Tee Times

Íslandsmót Golfklúbba, GO konur í 1. deild – fréttir af fyrsta leikdegi – uppfært

Golfklúbburinn Oddur á glæsilega fulltrúa á Íslandsmóti golfklúbba í 1. deild kvenna sem fram fer á Urriðavelli og Leirdalsvelli þessa dagana.

Konurnar áttu erfiða andstæðinga á fyrsta degi og í morgun léku þær við Keiliskonur og fór sá leikur 5 – 0 fyrir GK. Okkar konur mættu svo liði GR í seinni leik dagsins og þar voru að sjálfsögðu verðugir keppendur á ferð enda margar af bestu konum landsins í sveit GR. Það var baráttuvilji í okkar konum í þessari viðureign við GR konur sem voru þó með yfirburði í þremur leikjum, fórmenningsleikurinn fór á 15 holu og svo átti Hrafnhildur Guðjónsdóttir frábæran leik á móti Jóhönnu Leu Lúðvíksdóttur og endaði sá leikur jafn en Hrafnhildur var óheppin þegar hún týndi bolta á lokaholunni og því varð hún að gefa eftir þann vinning sem hún átti þegar sú hola var leikin. Okkar fyrsta 1/2 stig komið í hús sem var flott hjá okkar keppnisliði.

Það verður baráttuleikur á morgun hjá okkar konum þegar þær mæta liði GSS (Golfklúbbi Skagafjarðar) sá leikur hefst klukkan 9:34 á Leirdalsvelli og um að gera að kíkja á okkar konur.

< Fleiri fréttir