• 1. Object
  • 2. Object

3.1° - NNA 2.4 m/s

585 0050

Book Tee Times

Vetrarvöllur á seinni hluta Urriðavallar er opinn

Við höfum opnað fyrir leik á vetrarvelli Urriðavallar sem settur er upp á holum 10 – 18. Við minnum félagsmenn á að notast verður við vetrarteiga og leikið er inn á vetrarflatir.  Bannað er að slá af brautum vallarins og skulu allir færa sig út í röff og slá þaðan.

Auðvitað er völlurinn viðkvæmur á þessum árstíma og eitthvað farið að bera á frostlyftingu í þessari óvenjulega hlýju tíð og því er um að gera að fara varlega. Bókun er opin á golfbox en annars biðjum við alla um að gæta að fjarlægðartakmörkunum eins og frekast er kostur og snerta ekki flaggstangir og þá ætti snertifletir að vera verulega takmarkaðir.

Athugið að á 14. braut eru hafnar framkvæmdir við nýja fremstu teiga og því höfum við fært annan af tveimur teigum sem eru uppsettir þar framar og að byrjun brautarinnar. Að öðru leiti er sama uppsetning og almennt er og þar er 15. brautin lokið.

Njótið leiks og útiveru en gangið varlega um gleðinnar dyr. Gleðilega hátíð.

< Fleiri fréttir