Barna- og unglingastarf GO er ætlað börnum og ungmennum á öllum getustigum, allt frá þeim sem eru að stíga sín fyrstu skref í golfi yfir í iðkendur sem stefna á keppnis- og afreksgolf.
Markmið starfsins er að skapa jákvætt, metnaðarfullt og skemmtilegt æfingaumhverfi þar sem hver iðkandi fær tækifæri til að bæta sig, eignast félaga og njóta golfíþróttarinnar.
Æfingar barna og ungmenna hjá GO eru skipulagðar eftir aldri og getustigi og fara fram bæði á golfvallarsvæði klúbbsins og innanhúss yfir vetrartímann.
Markmiðið er að skapa jákvætt og metnaðarfullt æfingaumhverfi þar sem hver iðkandi fær verkefni við hæfi og tækifæri til að þróa leik sinn.
Auk hefðbundinna golfæfinga eru spilaæfingar, mót, námskeið og ýmsir viðburðir hluti af starfinu yfir árið.
Þjálfarateymi GO sér um kennslu, skipulag æfinga og eftirfylgni með iðkendum í barna- og unglingastarfinu.
Ber ábyrgð á faglegu skipulagi starfsins og sinnir þjálfun iðkenda.
Sinnir golfkennslu og þjálfun barna og ungmenna.
Sinnir golfkennslu og þjálfun barna og ungmenna.
Aðstoðar við æfingar og þjálfun barna og ungmenna.
Nýir iðkendur eru velkomnir í starfið. Ef þú ert óviss um hvaða hópur hentar best er hægt að hafa samband við íþróttastjóra GO og fá aðstoð við val á æfingahópi.
