• 1. Object
  • 2. Object

5.2° - SSA 9.5 m/s

585 0050

Book Tee Times

Aðalfundur GO 2021

þriðjudaginn 7. desember 2021

Kæru félagar, nú styttist í aðalfund Golfklúbbsins Odds sem haldinn verður í golfskálanum í Urriðavatnsdölum þriðjudaginn 7. desember kl. 20:00.*

Dagskrá:
Skýrsla stjórnar um störf og framkvæmdir á liðnu starfsári.
Kynning á endurskoðuðum ársreikningi félagsins.
Umræður um skýrslu stjórnar og ársreikning sem síðan skal borinn upp til samþykktar.
Umræður og atkvæðagreiðsla framkominna tillagna skv. 19. gr. ef einhverjar eru.
Afgreiðsla tillagna til lagabreytinga.
Ákveðið árgjald og önnur gjöld fyrir næsta starfsár. Fjárhagsáætlun næsta árs kynnt.
Kosning stjórnar og varamanna í stjórn.
Kosning tveggja skoðunarmanna reikninga og eins til vara.
Kosning þriggja manna í kjörnefnd.
Önnur málefni ef einhver eru.

*Við munum taka tillit til þeirra samkomutakmarkana sem eru í gildi á þeim tíma sem fundurinn fer fram svo flestir hafi möguleika á að mæta á fundinn. Fyrirkomulag fundarins verður nánar auglýst þegar nær dregur. 

Stjórn Golfklúbbsins Odds.

< Fleiri fréttir