• 1. Object
  • 2. Object

-3.4° - SSA 1.1 m/s

585 0050

Book Tee Times

Aðalfundur GO 2022

AÐALFUNDUR GO 2022 – þriðjudaginn 6. desember 2022

Kæru félagar, nú styttist í aðalfund Golfklúbbsins Odds sem haldinn verður í golfskálanum
í Urriðavatnsdölum þriðjudaginn 6. desember kl. 20:00.

Dagskrá:
Skýrsla stjórnar um störf og framkvæmdir á liðnu starfsári.
Kynning á endurskoðuðum ársreikningi félagsins.
Umræður um skýrslu stjórnar og ársreikning sem síðan skal borinn upp til samþykktar.
Umræður og atkvæðagreiðsla framkominna tillagna skv. 19. gr. ef einhverjar eru.
Afgreiðsla tillagna til lagabreytinga.
Ákveðið árgjald og önnur gjöld fyrir næsta starfsár. Fjárhagsáætlun næsta árs kynnt.
Kosning stjórnar og varamanna í stjórn.
Kosning tveggja skoðunarmanna reikninga og eins til vara.
Kosning þriggja manna í kjörnefnd.
Önnur málefni ef einhver eru.

Félagsmenn eru hvattir til að mæta,

Stjórn Golfklúbbsins Odds

< Fleiri fréttir