• 1. Object
  • 2. Object

4.6° - S 3.7 m/s

585 0050

Book Tee Times

AÐALFUNDUR GO 2023 

Hægt er að smella á þessa slóð til að sjá árskýrslu 2023.oddur.is

Kæru félagar, nú styttist í aðalfund Golfklúbbsins Odds sem áætlað er að haldinn verði í golfskálanum í Urriðavatnsdölum fimmtudaginn 30. nóvember kl. 20:00.

Dagskrá:
Skýrsla stjórnar um störf og framkvæmdir á liðnu starfsári.
Kynning á endurskoðuðum ársreikningi félagsins.
Umræður um skýrslu stjórnar og ársreikning sem síðan skal borinn upp til samþykktar.
Umræður og atkvæðagreiðsla framkominna tillagna skv. 19. gr. ef einhverjar eru.
Afgreiðsla tillagna til lagabreytinga.
Ákveðið árgjald og önnur gjöld fyrir næsta starfsár. Fjárhagsáætlun næsta árs kynnt.
Kosning stjórnar og varamanna í stjórn.
Kosning tveggja skoðunarmanna reikninga og eins til vara.
Kosning þriggja manna í kjörnefnd.
Önnur málefni ef einhver eru.
 
Félagsmenn eru hvattir til að mæta,


Stjórn Golfklúbbsins Odds

< Fleiri fréttir