
Á Urriðavelli er stórglæsilegt 350 fermetra veitinga- og klúbbhús.
Í klúbbhúsinu er afgreiðsla Urriðavallar ásamt verslun með helstu nauðsynjavörum golfarans. Þar er einnig búnings- og salernisaðstaða.
Skrifstofa golfklúbbsins er í klúbbhúsi ásamt fundarherbergi.
Stórglæsilegur veitinga- og veislusalur er í klúbbhúsinu sem rúmar um 110 manns í sæti og eldhúsið er búið öllum helstu tækjum og tólum. Frá veitingahúsinu er glæsilegt útsýni yfir stórann hluta vallarsvæðisins, bæði 9. og 18. hola eru staðsettar nálægt klúbbhúsinu.
Yfir sumartímann er salurinn í notkun fyrir almenna umferð golfara, gesta og vegna mótahalds en hægt er að leigja salinn undir veislur yfir þá mánuði sem almennur golfrekstur er ekki í gangi sem væri að jafnaði 15. október – 1. maí.
Allar upplýsingar um veitingasalinn og útleigu er hægt að fá hjá veitingaaðilum á netfangið hola@holamathus.is.