• 1. Object
  • 2. Object

7.6° - SSA 5.7 m/s

585 0050

Book Tee Times

Æfingar fyrir börn í ágúst og september

Golfklúbburinn Oddur og MP Golf munu standa fyrir æfingum einu sinni í viku fyrir börn sem hafa tekið þátt í golfleikjanámskeiðum hjá klúbbum á sl. tveimur árum eða hafa áhuga á að hefja æfingar í golfíþróttinni. Æfingar fara fram einu sinni í viku, miðvikudögum kl. 16:00. Æfingarnar hefjast miðvikudaginn 10. ágúst og standa fram í miðjan september.

Verð fyrir æfingatímabilið er kr. 10.000

Rögnvaldur Magnússon og Andrea Ásgrímsdóttir, PGA golfkennarar, munu sjá um æfingarnar. Á æfingunum gefst krökkunum tækifæri á að æfa golf af krafti fram í miðjan september. Þeir krakkar sem hafa svo áhuga geta hafið skipulagðar æfingar ásamt æfingahópi GO í vetur.

Skráning fer fram hér að neðan eða með tölvupósti á jonjulius@oddur.is. Nánari upplýsingar veitir Jón Júlíus Karlsson í síma 849-0154.

< Fleiri fréttir