• 1. Object
  • 2. Object

3.9° - SSA 2.1 m/s

585 0050

Book Tee Times

ÆFINGASVÆÐIÐ OPNAR – GÆTIÐ VEL AÐ ALMENNUM SÓTTVÖRNUM

Túlkun viðbragðshóps GSÍ  á reglugerðinni sem tók gildi 25. mars heimilar golfklúbbum opnun með ákveðnum takmörkunum og því höfum við ákveðið að opna æfingasvæðið okkar frá og með deginum í dag föstudeginum 26. mars klukkan 15:00. Vetrarvöllur GO er einnig opinn með ákveðnum vetrar og covid-reglum.

Æfingasvæðið okkar Lærlingur er því opinn með eftirfarandi reglum:

  • Svæðinu er skipt í A og B hólf ( sér inngangur er í hvort hólf )
  • Hámarksfjöldi í hvoru hólfi er 10 manns
  • Kylfingar skulu virða 2ja metra regluna
  • Sprittbrúsar eru aðgengilegir við bása og boltavél.
  • Kylfingar skulu sjálfir gæta skal að almennum sóttvörnum.
  • Grímunotkun er æskileg og góð regla að setja hana upp þegar farið er að bás og frá bás.

Almennar leiðbeiningar til kylfinga sem nýta sér æfingabása og boltavél:
– spritta körfur, bolta og snertiflöt á boltavél
– nota kylfuna við að draga bolta úr bakka að þeim stað sem slegið er
– forðast óþarfa snertingu á golfboltum t.d. við tíun (nota hanska eða kylfu við tíun ef það er hægt)
– Skila skal körfum á sinn stað við boltavél og góð regla að sótthreinsa körfur að lokinni notkun

Golfiðkun er áfram heimil utandyra og geta félagsmenn því leikið vetrarvöllinn okkar á holum 10 – 18. Hafið í huga að einhverjar vallarframkvæmdir eru í gangi við 14. holu og því göngustígur lokaður og hjáleið er inn á bílastæði Ljúflings

  • Völlurinn er eingöngu opinn félagsmönnum
  • Skylda er að skrá sig í rástíma á Golfbox (golf.is)
  • Félagsmenn skulu virða 2ja metra reglu
  • Enginn sameiginlegur búnaður eða snertifletir
  • Gæta skal að almennum sóttvörnum

Nú styttist í vorið og páskar og páskaleyfi framundan, við viljum því ítreka fyrir kylfingum sem heimsækja okkur að fara varlega, gæta vel að sóttvörnum og það á við bæði á svæðinu og almennt þar sem við hittum okkar nánustu eða njótum góðra stunda. Skrifstofa GO er opin og hægt að fylla á boltakort virka daga milli 9 – 16. Grímuskylda er í golfskálanum og 10 manns að hámarki geta verið í húsnæðinu.

< Fleiri fréttir